SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir16. apríl 2026

FYRST BÖNNUÐ, SÍÐAN SKYLDULESNING

Unglingabókin Intet eftir danska höfundinn Janne Teller er nú komin út í íslenskri þýðingu Ólafs Hauks Símonarsonar og ber titilinn Ekkert.  

Intet  kom fyrst út árið 2000 en þá voru viðtökurnar slíkar að hún var bönnuð í Danmörku og viðar. Það breyttist þó er á leið, bókin var endurútgefin árið 2010 og varð þá skyldulesning á unglingastigi. Nú er svo komið að bókin er orðin alþjóðleg metsölubók. Hún er lofsungin af gagnrýnendum og hefur verið þýdd á meira en 36 tungumál, og bætast ný tungumál stöðugt við, og selst í um tveimur milljónum eintaka um allan heim.

Sagan hefur verið sett upp í meira en 100 leikhúsum um víða veröld og árið 2016 var unnin ópera úr efni hennar, í samstarfi Glyndebourne og London Royal Opera. Árið 2022 var sagan síðan sett á markað sem dönsk kvikmynd.

Janne Teller er margverðlaunaður metsöluhöfundur, dönsk af austurrísk-þýskum uppruna. Hún hefur gefið út níu bækur og snúast verk hennar gjarnan um tilvistarlegar og siðferðilegar spurningar.

Sagan Ekkert fjallar um 14 ára gamla unglinga og hrindir Pierre Anthon atburðarásinni af stað þegar hann yfirgefur kennslustund og segir ekkert hafa neina þýðingu. Hann kemur sér fyrir uppi í tré og reyna bekkjarfélagar hans að sannfæra hann um að lífið hafi tilgang. Í því efni ganga þau stöðugt lengra og jafnframt fram af lesandanum, a.m.k. þeim sem hér hamrar á lyklaborð!

Þessi saga er þeirrar gerðar að hún gleymist seint. Hún vekur mjög til umhugsunar og segir höfundurinn að sjálf hafi hún orðið ánægðari með lífið eftir að hafa skrifað bókina:

Der er ingen tvivl om, at jeg er blevet meget gladere for livet, efter jeg har skrevet ”Intet”. Sagen er nok, at det gik langsomt op for mig, at jeg aldrig vil kunne komme til at besvare Pierre Anthons spørgsmål. Min konklusion er i stedet for, at vi lever lige her og nu, og det eneste, vi ved, er, at vi har fået den gave at være i live. Og den gave er jo blot endnu mere fantastisk, fordi vi ikke ved, hvorfor vi har fået den.