SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir14. maí 2026

SAMTÍMI SOLVEJ BALLE, SJÁLFSMYND OG VIÐTÖKUR VERKA DRÍFU VIÐAR

Nýtt tölublað Ritsins, tímarits Hugvísindastofnunar, er komið út og er það að þessu sinni helgað málvísindarannsóknum á framburði íslensku og íslensks táknmáls.

Tvær greinar standa utan þema en báðar eru þær á sviði bókmennta. 

Rúmmálsreikningur (Om udregning af rumfang) eftir danska rithöfundinn Solvej Balle er viðfangsefni greinar Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur. Þar er dregið fram hvernig skáldverkið snertir á djúpan hátt á ýmsum málum er varða líf okkar í samtímanum, ekki síst loftslagsbreytingum og ágangi mannsins á auðlindir jarðar. 

Heftinu lýkur með grein Helgu Kress um skáldskap Drífu Viðar. Helga skoðar sjálfsmyndir í skáldsögunni Fjalldalslilju og smásagnasafninu Dagar við vatnið en beinir jafnframt sjónum að viðtökum verkanna og áhrifum Drífu á aðra listamenn.

Ritstjórar þessa þemaheftis eru Ásgrímur Angantýsson og Finnur Friðriksson en aðalritstjóri Ritsins er Guðrún Steinþórsdóttir. Það er aldeilis frábært að Ritið er gefið út í rafrænum og opnum aðgangi á ritid.hi.is.

 

 

 

 

Tengt efni