SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir 6. maí 2026

LEIÐIN HEIM

Út er komin skáldsagan Leiðin heim eftir Karítas Sigurðardóttur. í umsögn hennar segir svo: Einn fallegan vordag í París rennur það upp fyrir Malín að hún getur ekki lengur falið sig á bak við að vera tuttugu og eitthvað, enn að finna sig, enn með tímann með sér í liði. Á yfirborðinu virðist líf hennar fullkomið. Ástin örugg. Framtíðin skipulögð. Fótboltastelpan úr Árbænum er komin á stað sem hana hefði aldrei getað dreymt um.

En er lífið sem hún hefur valið sér raunverulega hennar? Eða hefur hún verið á stöðugum hlaupum – ekki í átt að draumum sínum, heldur í burt frá gömlum sárum? Og hvað gerist þegar hún mætir draugi fortíðar, fyrstu ástinni, eftir allan þennan tíma?

Gott að fá skáldsögu snemma vors til að kippa með sér í sumarleyfið.

Hlakka til að lesa.