SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir26. maí 2026

HARÐBALABLÚS

Ragnhildur Guðmundsdóttir forstöðumaður Náttúruminjasafnsins var gestalesari á ljóðaþingi til heiðurs Guðrúnar Hannesadóttur. Þetta flaug í gegnum hennar huga við lestur ljóðsins Harðbalablús

 
Harðbalablús
 
Hefði ég bara hlustað
heyrt í þér gegnum svefninn
mýrarsmugan mín
brjóst þitt hreint eins og nýrunnin aska
þá hefði ég rofið svefnhjúp minn
veitt sitrandi smálæk að koddanum
og búið þér hvílu í rökkrinu
okkur hefði dreymt mjúkan dýjamosa
dreymt að við ösluðum óþreytt mýrarrauðann
þræddum dögg og leynda veituvegi
ég hefði fengið galdrafjöður að launum
þú flogið næst hjarta mínu
borað á það lítið gat
hleypt inn bláu ljósi

 

Þegar ég les ljóð þá leita ég alltaf að náttúrutengingum og gleðst yfir því þegar ég kem auga á hvernig höfundurinn hefur fengið innblástur úr náttúrunni í kringum sig. Sérstaklega verð ég glöð þegar ég sé að sérstaða náttúra Íslands er í hávegum höfð. Í ljóðum Guðrúnar er af nógu að taka þegar kemur að náttúrutilvísunum. Þessar náttúrutengingar geta fengi mann til að gleyma stund og stað og gerir okkur kleift að ferðast með höfundi út í náttúruna. Í þessu tilfelli erum við mætt út í mýri þar sem við sökkvum í votlendið upp að kálfum og fylgjum smálæk með skærgrænni dýjamosabreiðu á bökkum sínum á meðan við eltum mýrarsmugu. Í skýringunni með ljóðinu kemur fram að mýrarsmugan er keldusvín en eitt slíkt flaug á glugga höfundar og drapst við það og varð innblástur þessa ljóðs. Keldusvín er fuglategund sem varð útdauð sem varpfugl á Íslandi um 1970 en kemur til landsins af og til sem flækingur ennþá. Ástæður útdauðans voru búsvæðaeyðing vegna framræslu mýrlendis og því minnkaði búsvæði tegundarinnar en einnig tilkoma minksins í íslenska náttúru en sú tegund var flutt inn vegna skinnaframleiðslu. Minkurinn slapp svo frá búum og telst nú sem framandi ágeng tegund í íslenskri náttúru. Það má geta þess að bæði búsvæðaeyðing og framandi ágengar tegundir eru tvær af fimm helstu ástæðum fyrir hnignun líffræðilegrar fjölbreytni á heimsvísu en hinar þrjár eru loftslagsbreytingar, mengun og ofnýting.

Mikilvægi náttúrunnar sem innblástur fyrir listafólk verður seint ofmetin og einnig fyrir okkar andlegu heilsu. Göngutúr út í náttúrunni færir okkur núllstillingu, hugurinn róast og nýjar tengingar verða til. Verndun náttúrunnar er ekki einungis mikilvæg náttúrunnar vegna heldur einnig fyrir okkur mannfólkið þar sem við erum partur af náttúrunni. Við þurfum bara að passa að ganga ekki um of á landsins gæði svo framtíðarkynslóðir geti einnig notið líkt og við.

 

Tengt efni