Soffía Auður Birgisdóttir∙25. júní 2026
SUMARFRÍ

Eins og dyggir lesendur vefsins hafa væntanlega tekið eftir er lítið um nýjar færslur á Skáld.is þessa dagana. Ritstjórnarmeðlimir verða í sumarfríi næstu vikur en eru að dytta að innri gerð vefsins - uppfæra færslur í Skáldatali og svo framvegis. Það er þó ekki loku fyrir það skotið að eitthvað nýtt efni detti inn við og við næstu viku, fréttir, ritdómar, greinar eða viðtöl, ef tækifæri gefst!
Við óskum fylgjendum okkar gleðilegs sumars og vonum að allir njóti sumarfrís og sælu!