SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir30. ágúst 2026

Olga Tokarczuk hlýtur Laxnessverðlaunin

Bókmenntahátíð í Reykjavík hefur tilkynnt að Nóbelshöfundurinn Olga Tokarczuk hljóti Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í ár. Verðlaunin verða afhent í Reykjavík Norræna húsinu fimmtudaginn 10. september kl 17.00. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. 

Í valnefnd Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness árið 2026 sátu Salman Rushdie, handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2024, Egill Helgason fjölmiðlamaður og Stella Soffía Jóhannesdóttir stjórnarformaður Alþjóðlegu bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík.
 
Í rökstuðningi valnefndar er haft eftir Salman Rushdie: „Olga Tokarczuk er einfaldlega einn fremsti núlifandi rithöfundur heims. Í verkum hennar renna harmleikur, gamanleikur, saga og írónía saman í einstaklega bragðgóða bókmenntablöndu. Það gleður mig mjög að hún hafi þegið Laxness-verðlaunin. Með því hefur hún sýnt okkur öllum mikinn heiður.“
 
Olga Tokarczuk er fædd í Póllandi 1962 og er stórkostlegur rithöfundur. Tvær af skáldsögum hennar hafa verið þýddar á íslensku, Drag plóg þinn yfir bein hinnar dauðu (2022) og Hús dags, hús nætur (2025) - Árni Óskarsson þýddi báðar sögurnar. Þá birtist smásaga hennar, Dansarinn, í 4. hefti Tímarits Máls og menningar 2024 í þýðingu Steinunnar Helgadóttur.
 
Það er sannarlega gleðilegt að verðlaunin komi í hlut svo merks höfundar eins og Olgu Tokarczuk. Hún er önnur konan sem hlýtur Laxness verðlaunin eftir að þeim var breytt í alþjóðleg verðlaun árið 2019 - áður höfðu eftirfarandi höfundar hlotið þau: Ian McEwan, Elif Safhak, Andrej Kurkov og Salman Rusdie.
 
Það er hins vegar í raun illskiljanlegt af hverju verðlaununum var breytt í alþjóðleg verðlaun og af hverju Íslendingar eru að verðlauna erlenda höfunda, sem allir hafa þegar hlotið mýmörg og merkilegri verðlaun, með peningaupphæð sem er hærri en nokkur íslensk bókmenntaverðlaun. Hvaða snobb er þar á ferðinni? Væri peningunum ekki betur varið í að styrkja innlenda rithöfunda sem margir skora ekki hátt á tekjulista landsins?