SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir31. ágúst 2026

ALLS KONAR NÁMSKEIÐ Í RITLIST Í BOÐI NÚ Á HAUSTMÁNUÐUM

Þeir sem eiga sér draum um að skrifa - og kannski gefa út bók - eiga völ á ýmsum námskeiðum nú í haust.

Endurmenntun Háskóla Íslands býður til að mynda upp á ritlistarnámskeið í samstarfi við SVIKASKÁLDIN, en það eru þær Melkorka Ólafsdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Sunna Dís Másdóttir, Þóra Hjörleifsdóttir og Þórdís Helgadóttir, sem allar eru reyndir höfundar sem gefið hafa út bækur. Þetta er viðamikið námskeið sem samanstendur af 60 stundum, kennt í 16 skipti, m.a. farið í helgar-vinnubúðir, og er þar af leiðandi nokkuð dýrt. Námskeiðinu er lýst þannig:

 

Á ritlistarnámskeiði Svikaskálda munu nemendur kynnast fjölbreyttum hliðum skapandi skrifa og læra að nýta hin ýmsu tól úr verkfærakistu rithöfundarins. Námið skiptist í vinnustofur, heimaverkefni, þátttöku í rithringjum og tilsögn í upplestri. Kennsla fer fram eitt kvöld í viku, en þar fyrir utan vinna nemendur í textum sínum heima. Nemendur skila reglulega verkefnum til ritvina og kennara. Með ritvina fyrirkomulagi fá nemendur þjálfun í að veita og taka á móti gagnlegri endurgjöf og mynda samfélag skrifandi fólks. Námskeiðinu lýkur á upplestrarkvöldi. Nemendur munu að námskeiði loknu hafa í handraðanum úrval af ólíkum textum sem gætu nýst fólki sem hefur hug á að sækja um frekara ritlistarnám á háskólastigi eða sem efniviður í áframhaldandi skrif.

Á námskeiðinu verður farið í ritlistar vinnuhelgi að hætti Svikaskálda á Sólheima í Grímsnesi. Gisting í tvær nætur, tveir hádegisverðir og einn kvöldverður er innifalið í verði námskeiðsins.

Ritlistarnámskeið Svikaskálda hentar þeim sem vilja öðlast meira sjálfstraust í eigin skrifum og kynnast ólíkum gerðum texta. Námskeiðið hentar þeim sem vilja sökkva sér í eigin ritstörf og skerpa rödd sína sem rithöfundar.

 

Þá býður Endurmenntun einnig upp á námskeið fyrir þá sem vilja skrifa barnabækur og það eru stjörnuhöfundarnir Arndís Þórarinsdóttir og Ævar Þór Benediktsson sem sjá um kennsluna þar. Námskeiðið er kennt á fjórum kvöldum, samtals 10 tímum og er lýst þannig:

 

Á þessu námskeiði verða þátttakendur leiddir í gegnum undraheima barnabókmenntanna og kennarar deila hagnýtum ráðum í bland við vangaveltur um innstu rök skáldskaparins. Fjallað er um hugmyndavinnu, persónusköpun og frásögn – með sérstakri áherslu á barnabækur samtímans.

Engin heimavinna er á námskeiðinu, en unnið er með kveikjur og skapandi æfingar í tímum.

Námskeiðið er ætlað áhugafólki um ritun barnabóka sem hefur einhverja reynslu af skrifum, en vill dýpka þekkingu sína og færni.

 

Björg Árnadóttir rekur fyrirtækið STÍLVOPNIÐ og býður upp á ritlistarnámskeið, sköpunarsmiðjur og ævintýraferðir, eins og lesa má um á heimasíðunni. Hún verður með stutt og hnitmiðað ritlistarnámskeið helgina 25.-27. september næstkomandi, sem lýst er á þennan hátt:

 

Hópurinn er leiddur í gegnum helstu þætti sagnaritunar. Mikil vinnusemi ríkir á þessu hnitmiðaða helgarnámskeiði og í lokin hafa þátttakendur skrifað drög að eða fullgerða sögu. Þótt skrifuð sé smásaga hentar námskeiðið öllum sem vinna með fólk og framvindu í skrifum sínum hvaða nafni sem þau nefnast.

 
 
 
Hvernig fólk kemur?
Ég hef þróað og kennt þetta námskeið síðan ég kynntist ritlistarkennslu fyrst árið 1985. Námskeiðið hefur sótt fjöldinn allur af fólki á öllum aldri, byrjendur jafnt sem útgefnir höfundir, enda lærum við öll af skapandi samskiptum, skrifum og textarýni. Námskeiðið hentar líka þeim sem fyrst og fremst vilja læra að njóta lesturs betur.
 
Fyrirkomulag námskeiðs
Fös. 25. sept. kl. 17:00-21:00: UPPHITUN OG KVEIKJUR
Hrist upp í hópnum og heilasellunum og hópurinn hnoðaður saman með stuttum ritlistaræfingum. Rætt um ritunarferlið og æfingar skrifaðar til að auka flæðið og koma þátttakendum af stað með eigin sögu.
Lau. 26. sept. kl. 10:00-14:00: PERSÓNUR
Þátttakendur finna í sameiningu flöt á ákveðnu umfjöllunarefni og skrifa um það frá sjónarhóli mismunandi sögupersóna. Rætt um hlutverk persóna í bókmenntum og persónusköpun æfð. Skrifað og skrafað um skáldaðar persónur sem birtast á blaðsíðum bóka.
Sun.  27. feb. 10:00-14:00: UPPBYGGING OG FORM
Fjallað um og unnið með uppbyggingu og form, framvindu og spennu. Rætt um skrif hvers og eins í hópnum enda er höfundum hollt að skoða eigin verk og annarra.

 

 

Að lokum má svo nefna HÖFUNDASKÓLANN en hann var stofnaður af Sif Traustadóttur sem gaf út sína fyrstu bók árið 2011 og hefur síðan þá haldið ritsmiðjur og námskeið þar sem fólk hefur farið frá hugmynd að handriti og í mörgum tilfellum alla leið í útgáfu. Sif lýsir skólanum sem stað "fyrir sögur, skrif og höfunda í mótun". 

Um námskeið Höfundaskólans og það sem þar er kallað "ritstíflueyðir" má lesa nánar á heimasíðunni.

Nú er bara að drífa sig á námskeið og velja eftir efnum og aðstæðum!