TVÆR MERKAR SÆNSKAR SKÁLDKONUR ÞÝDDAR
Nýkomnar eru út skáldsögur eftir tvær merkar skáldkonur frá Svíþjóð: Birgittu Trotzig og Lisu Ridzén.

BIRGITTE TROTZIG (1929-2011) er meðal mikilvægustu rithöfunda Svíþjóðar á síðari hluta tuttugustu aldar. Hún fæddist í Gautaborg, eina barn kennarahjóna. Hún stundaði um hríð nám í bókmenntum en fór síðan að skrifa fyrir blöð og tímarit. Hún giftist listamanninum Ulf Trotzig og bjuggu þau í París á árunum 1955-1969. Þar snerist hún til kaþólskrar trúar. Birgitta Trotzig var margverðlaunuð fyrir bækur sínar og var kjörin í Sænsku akademíuna árið 1993. Dóttir dýjakóngs er ein þekktasta skáldsaga hennar og þegar hún kom út, árið 1985, voru Birgittu veitt Pilot-verðlaunin svonefndu. Í rökstuðningi dómnefndar sagði: "Með töfrandi og seiðandi stíl sínum hefur Birgitta Trotzig víkkað mörk hins ósegjanlega." Þrjátíu og fimm ára höfundarferill hennar nær hámarki í Dóttur dýjakóngs."
Útgefandi lýsir sögunni á eftirfarandi hátt:
Ung kona sem búið hefur í foreldrahúsum í litlu þorpi fer alfarin að heiman því hún hefur kynnst manni. En honum fylgir eyðingarmáttur sem verður henni örlagaríkur og birtist á ný í dóttur þeirra og enn síðar dóttursyni. Áhrifarík skáldsaga um hve fólki reynist erfitt að tengjast og festa rætur á umbrotatímum. Í ljóðrænum myndum er stórra spurninga spurt um vald og svik, sekt og fyrirgefningu, um leitina að merkingu og skilyrðislausri ást.
LIZA RIDZÉN er fædd 1988 og er meðal áhugaverðustu samtímahöfundum Svía. Trönurnar fljúga suður er fyrsta bók hennar og sló rækilega í gegn þegar hún kom út 2024 og er marg-verðlaunuð. Lýsing útgefanda á bókinni er eftirfarandi:
Bo finnur að líf hans er að fjara út. Líkami hans er að gefa sig og kyrrlátt líf hans er aðeins rofið af daglegum heimsóknum heimaþjónustunnar. Hendur hans verða brátt of máttlitlar til að opna boxið dýrmæta með sjali eiginkonu hans, Frederiku, sem þjáist af alzheimer-sjúkdómnum, en sjalið ber enn ilm hennar. Sem betur fer hefur hann ennþá tryggan félaga sinn, hundinn Sixten, sér við hlið en nú krefst sonur hans þess að hann láti hundinn fara. Það fær Bo til að hugsa um líf sitt, föðurhlutverkið og hvernig hann hefur tjáð ást sína um dagana. Trönurnar fljúga suður var valin bók ársins í Svíþjóð árið 2024 og hefur síðan farið sigurför um heiminn, hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna og setið mánuðum saman í efstu sætum metsölulista.