Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙ 5. september 2026
HARPA HILDIBERG HLAUT FYRSTU VERÐLAUN Í LJÓÐAKEPPNI LJÓSBERANS

Harpa Hildiberg hlaut fyrstu verðlaun fyrir ljóð sitt Þar sem hafið mætir eldinum í ljóðasamkeppni Ljósberans árið 2026. Verðlaunin voru afhent í Bókasafni Suðurnesjabæjar í gær.
Skáld.is fékk góðfúslegt leyfi höfundar til að birta þetta áhrifaríka ljóð:
Þar sem hafið mætir eldinum
Á Suðurnesjum
gengur vindurinn aldrei fram hjá.
Hann bankar ekki,
spyr ekki hvort hann megi koma inn,
heldur tekur í húsið
eins og gamall kunningi
sem veit að honum verður fyrirgefið.
Hér hefur fólkið lært
að snúa baki í vindinn
en aldrei í lífið.
Hafið gefur
og hafið tekur.
Í öldunum býr söknuður
eftir þeim
sem hafið skilaði aldrei heim.
Á Suðurnesjum
mætast eldur og haf,
myrkur og ljós,
ótti og von.
Undir fótum okkar
sefur eldurinn.
Við vissum það alltaf,
en gleymum því stundum,
þar til jörðin
minnir okkur á
að ekkert er sjálfsagt.
Og kannski er það þess vegna
sem fólkið hér veit betur en flestir:
Að jafnvel minnsta ljós
getur vísað manni heim.