SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir∙12. október 2026

ÍSFÓLKIÐ Í BÓKASAFNI KÓPAVOGS

Bækurnar um Ísfólkið nutu fádæma vinsælda á Íslandi á níunda áratugnum. Þær komu fyrst út á árunum 1982-1989 og seldist hver bók að meðaltali í 7-9000 eintökum í öllum betri sjoppum. Samtals eru bækurnar 47.
 

Margit Sandemo (1924-2018) sendi fyrstu Ísfólksbókina frá sér árið 1980. Í allt hefur hún skrifað meira en 170 bækur og er mest seldi rithöfundur Norðurlandanna ( um 39 milljónir seldra bóka). Sagan um Ísfólkið hefur selst í um 25 milljónum eintaka um allan heim þegar þetta er ritað.

Í bókunum er rakin ættarsaga Ísfólksins sem á hvílir bölvun frá 16. öld til okkar daga. Ættfaðir Ísfólksins, Þengill hinn illi, seldi djöflinum sál sína. Upp frá því hvílir bölvun á afkomendum hans, sem felst í því að einn af hverri kynslóð verður að þjóna hinu illa. Fyrsta sagan gengur út á að einn afkomandi hans, Þengill hinn góði, berst gegn bölvuninni sem hrjáir hann. Sögurnar snúast yfirleitt um þann sem bölvunin lendir á í hverri kynslóð með tilheyrandi ástarflækjum og bullandi erótík. Frumleg mannanöfn koma fyrir í bókunum og rötuðu nokkur í íslenskar kirkjubækur, svo áhrifa Ísfólksins gætir víða.

Ísfólksbækurnar seldust upp og voru um langa hríð ófáanlegar en sem betur fer voru þær endurútgefnar um 2008 og nú eru þær í stöðugu útláni á bókasöfnum og vinsælar á hljóðbókaveitum. Ýmsir hafa þýtt Ísfólkið, s.s. Ingibjörg Jónsdóttir, Ingibjörg Briem og Snjólaug Bragadóttir.
 
Ísfólkið hefur ekki talist bókmenntalegt stórvirki og var kallað „sjoppubókmenntir“. Bækurnar þóttu ekki nógu merkilegar til að taka pláss í alvöru bókabúðum. En hvað er það sem gerir Ísfólkið svona heillandi? Og hver ákveður hvaða bækur eru góðar og hverjar ekki? Brynhildur Björnsdóttir, bókmenntafræðingur, endurlas allar bækurnar um daginn og komst að ýmsu sem hún ætlar að segja frá í Bókasafni Kópavogs þann 21. október nk kl 17. 

Verið öll velkomin!

 

Tengt efni