Kerlingabækur - Málþing og menningardagskrá í Tryggvaskála
Þann 19. október klukkar 20:00 fer fram í Tryggvaskála hið árlega málþing Bókabæjanna Austanfjalls. Yfirskriftin að þessu sinni er ,,Kerlingabækur". Fjallað verður um bókmenntir kvenna í breiðu samhengi, tali og tónum. Fræðimenn og fólk munu tala saman, sagnaskáld, söngvaskáld og Svikaskáld flytja frumsamið efni, og Leikfélag Selfoss lætur ljós sitt skína. Dagskrá:
-
Dagný Kristjánsdóttir, prófessor, fjallar um Kerlingabækur og bókmenntasöguna.
-
Birgir Dýrfjörð segir frá æskuminningum sínum tengdum móður allra kerlingabóka - Guðrúnu frá Lundi.
-
Söngvaskáldið Hera Hjartardóttir sem nú er stödd hér á landi flytur nokkra tóna.
-
Hveragerðis-skáldið Guðrún Eva Mínervudóttir spjallar við gesti og les úr verkum sínum.
-
Svikaskáld lesa frumsamin ljóð.
-
Leikfélag Selfoss sýnir brot úr nýju verki VERTU SVONA KONA sem er verk um konuna í sögunni eða sögu konunnar - sameiginleg sköpun leikhópsins með fléttuðum textum eftir Margaret Atwood.
Kynnar verða Harpa Rún Kristjánsdóttir og Jón Özur Snorrason Kaffi og konfekt í boði Bókabæjanna
Ása Jóhanns