Steinunn Inga Óttarsdóttir∙ 6. ágúst 2019
Eftir versló
Verslunarmannahelgin afstaðin með bogri í lágreistu tjaldi, brenndu grillkjöti, volgum bjór og umferðarteppu og við birtum ljóð henni til heiðurs.
Sigurbjörg Þrastardóttir yrkir í Hryggdýrum (2018) um Lopa:
Margir á stjákli
í peysum
með regluleg
hjartalínurit yfir brjóst
- jafnvel bak
svo enginn fái
þá
ónotahugmynd
að örvænta
Mynd: amazon.uk