Harpa Rún hreppir bókmenntaverðlaun
Harpa Rún Kristjánsdóttir hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2019 fyrir ljóðahandritið Edda. Borgarstjóri Dagur B. Eggertson veitti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða. Alls bárust 58 ljóðahandrit til dómnefndarinnar en hana skipuðu Sif Sigmarsdóttir formaður, Þórarinn Eldjárn og Börkur Gunnarsson.
Í niðurstöðu dómnefndar segir m.a. að bókin sé látlaust verk um dramatískustu andartök hverrar mannsævi; upphaf hennar og endi. Ljóðin ferðast milli fyrstu augnablika lífsins til þeirra síðustu. Gleðin og sorgin takast á, tvinnast saman og verða loks eitt.
Harpa Rún er fædd árið 1990. „Hún lauk meistaraprófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 2018 og fjallaði lokaritgerð hennar um íslenskar ólandssögur eða staðleysur og þróun þeirra. Harpa Rún er uppalin í sveit undir Heklurótum og býr þar enn og starfar á sauðfjárbúi. Hún er einnig lausakona í ritstjórn og prófarkalestri“ segir á vef Mbl.
Júlía Sveinsdóttir