Soffía Auður Birgisdóttir∙10. nóvember 2019
Ný ljóðabók eftir Eyrúnu Ósk
Eyrún Ósk Jónsdóttir hefur sent frá sér þriðju ljóðabók sína, Mamma, má ég segja þér? Áður hefur hún sent frá sér ljóðbækurnar Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa (2016) sem hún hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir. 2018 kom ljóðabókin Í huganum ráðgeri morð, en ritdóm um hana má lesa hér.
Í nýju bókinni yrkir Eyrún Ósk um vandamál og ógnir sem steðja að mannkyninu en einnig um kærleikann, vonina og ástina, sem segja má að sé sterkasta aflið í ljóðmáli hennar.
Rósakvars
er kristall ástarinnar
og opnar hjartastöðina
en hver þarf töfrasteina
þegar þú starir
safír-bláum augum
í sálardjúpið
og tendrar eld?