Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙25. febrúar 2020
Tvær konur tilnefndar til Sparibollans
Tilnefningar til Sparibollans, bókmenntaverðlauna veittra fyrir fegurstu ástarjátninguna í íslenskum bókmenntum á árinu 2019 liggja nú fyrir og eru tvær skáldkonur þar á meðal:
- Guðrún Eva Mínervudóttir, fyrir fallegustu lýsinguna á hvunndagsástum venjulegs fólks, í skáldsögu sinni Aðferðir til að lifa af.
- Ragna Sigurðardóttir, fyrir fallegustu ástarjátninguna til listarinnar og litapalletu veraldarinnar, í smásagnasafni sínu Vetrargulrætur.
Auk þeirra voru tilnefndir þrír karlar:
- Andri Snær Magnason fyrir fallegustu ástarjátninguna til fjölskyldunnar, í bók sinni Um tímann og vatnið.
- Dagur Hjartarson, fyrir fallegustu lýsinguna á ást sem leiðir til harmleiks, í skáldsögu sinni Við erum ekki morðingjar.
- Sölvi Björn Sigurðsson, fyrir fallegustu lýsinguna á harðseigri ást sem stenst tímans tönn, í skáldsögu sinni Seltu.
Allir eiga þessir fimm höfundar það sameiginlegt að hafa skrifað mjög sterkar og eftirminnilegar bækur – og mjög ólíkar. Ástin á sér margar birtingarmyndir.