SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 4. nóvember 2020

Hernám, lífsháski og umrót

Kristín Steinsdóttir hefur sent frá sér nýja skáldsögu, Yfir bænum heima. Líklega sækir hún söguefnið til eigin reynslu og á eigin æskuslóðir, því í kynningu á bókinni segir:

Það er vor í litlum bæ við sjóinn. Atvinna er stopul og unga fólkið dreymir um bjartari tíma. En þegar stríðið kemur í bæinn, sjálf heimsstyrjöldin, breytist allt. Göturnar fyllast af erlendum hermönnum, braggar rísa, dansinn dunar og bæjarbúar þurfa vegabréf til að komast á milli hverfa. Úti á firði liggja herskip og yfir vofir ógnin: Flugvélar með sprengjur sem enginn veit hvar falla.

Yfir bænum heima segir frá stórfjölskyldu á Seyðisfirði, nágrönnum og heimilis-vinum. Ásta er fimmtán ára þegar ófriðurinn hefst og spennt fyrir nýjungum. Þrúða systir hennar á ung börn og er undir miklu álagi í starfi sínu á Símstöðinni. Rúna móðir þeirra tekur öllu af æðruleysi en heimilisfaðirinn Snjólfur er andsnúinn hernum þótt nú hafi þau nóg að bíta og brenna. Hver kynslóð bregst við með sínum hætti og milli heimafólks og aðkomumanna kviknar smám saman vinátta og væntumþykja – en styrjöldin, lífsháskinn og umrótið í bænum marka djúp spor.

Kristín er vinsæll og margverðlaunaður höfundur og fagna margir lesendur þessari nýju skáldsögu hennar.