SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ritstjórn 5. janúar 2021

Þóra Karítas komin í skáldatalið

 

 

Smám saman bætist við skáldatalið okkar og í dag er þar ný færsla um Þóru Karítas Árnadóttur.

Þóra Karítas hefur getið sér gott orð fyrir bækur sínar tvær, Mörk - saga mömmu (2015) og Blóðberg (2020).

Þóra Karítas hefur fjölbreyttan starfsferil og hefur sinnt ýmsum störfum auk skrifta, eins og lesa má um í skáldatalinu.

Við bjóðum hana hjartanlega velkomna á Skáld.is