Ritstjórn∙10. janúar 2021
Frumbirting ljóðsins Voðin
Jóna Guðbjörg Torfadóttir yrkir þessa dagana um ljósmyndir sem hún hefur tekið á göngu sinni um borg og bý. Eitt ljóðanna nefnist Voðin og er um myndina hér að ofan:
Voðin
Dúnmjúk voðin
leggst
yfir gullhetturnar.
Senn fá þær
nýja kolla
úr bifandi skýjahárum.