Tilnefndar konur
Unnendum hljóðbóka á Íslandi gefst kostur á að kjósa sína eftirlætisbók sem kom út á liðnu ári. Hundrað bækur eru tilnefndar sem hljóðbók ársins í fjórum bókaflokkum; barna- og ungmennabókum, glæpasögum, skáldsögum og óskálduðu efni.
Á síðu Storytel Awards eru listar með 25 bókum úr hverjum bókaflokki sem hafa fengið bæði mesta hlustun og flestar stjörnur í appi veitunnar. Þegar almenningur hefur kosið fara fimm efstu bækur hvers flokks úr kosningunni fyrir dómnefnd sem velur vinningshafa úr hverjum bókaflokki.
Hér á eftir má sjá þær bækur eftir íslenskar konur sem hafa ratað á lista í hverjum flokki fyrir sig:
Barna- og ungmennabækur
Bergrún Íris Sævarsdóttir: Kennarinn sem hvarf
Bergrún Íris Sævarsdóttir: Langelstur að eilífu
Eva Rún Þorgeirsdóttir: Stúfur hættir að vera jólasveinn
Eva Rún Þorgeirsdóttir: Sögur fyrir svefninn
Hildur Loftsdóttir: Eyðieyjan. Urr, öskur, fótur og fit
Jenný K. Kolsöe: Afi sterki og skessuskammirnar
Jenný K. Kolsöe: Amma óþekka: Klandur á Klambratúni
Glæpasögur
Eva Björg Ægisdóttir: Stelpur sem ljúga
Lilja Sigurðardóttir: Helköld sól
Sólveig Pálsdóttir: Fjötrar
Sólveig Pálsdóttir, Yrsa Sigurðardóttir, Lilja Sigurðardóttir, Eva Björg Ægisdóttir, Jónína Leósdóttir og Quentin Bates: Rökkursögur
Yrsa Sigurðardóttir: Þögn
Skáldsögur
Guðrún Eva Mínervudóttir: Aðferðir til að lifa af
Guðrún Sigríður Sæmundssen: Hann kallar á mig
Sandra B. Clausen: Krákan
Unnur Lilja Aradóttir: Einfaldlega Emma
Óskáldað efni
Anna Ragna Fossberg: Auðna
Björg Guðrún Gísladóttir: Skuggasól
Friðrika Benónýsdóttir: Minn hlátur er sorg: ævisaga Ástu Sigurðardóttur
Guðríður Haraldsdóttir: Anna - Eins og ég er
Margrét Dagmar Ericsdóttir: Vængjaþytur vonarinnar
Ólína Þorvarðardóttir: Spegill fyrir Skuggabaldur
Steinunn Ásmundsdóttir: Manneskjusaga
Sæunn Kjartansdóttir: Óstýriláta mamma og ég
Vigdís Grímsdóttir: Sagan um Bíbí Ólafsdóttur