Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙23. febrúar 2021
Enn bætist við Skáldatalið
Nýjasta viðbótin við sívaxandi Skáldatalið okkar er Helga Sigfúsdóttir.
Helgu hafði lengi dreymt um að skrifa sögur og rættist sá draumur árið 2019 þegar hún sendi frá sér barnabókina Valur eignast systkini. Sagan er skrifuð út frá persónulegri reynslu og er ætlað að kynna börnum á leikskólaaldri fyrir því hvað skarð í vör og góm er.