SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir∙ 2. mars 2021

Smásagnasamkeppni

Tímaritið HÚSFREYJAN efnir til smásagnasamkeppni og hefur frestur verið framlengdur til 1. apríl. Líkt og ljóðið er smásagan í bullandi sókn þessi árin og Skáld.is hvetur allar skrifandi konur til að taka þátt.

Eins og kemur fram í auglýsingunni hér að ofan er yfirskrift samkeppninnar: JÁKVÆÐ OG HVETJANDI. Nafnið dregur keppnin af undirtitli Húsfreyjunnar. Samkeppnin er öllum opin.

Reglur keppninnar:

Sagan má ekki hafa birst áður á prenti eða í fjölmiðli. Sagan skal vera fremur stutt eða á bilinu 1000-1500 orð að lengd. Senda skal söguna útprentaða á pappír merkta dulnefni ásamt lokuðu umslagi merktu sama dulnefni með upplýsingum um höfund sögunnar: Nafni, heimilisfangi, netfangi, síma og kennitölu. Sögurnar skulu að hafa borist fyrir 1. apríl 2021 til Húsfreyjunnar.

Utanáskriftin er:

Húsfreyjan - smásögur
Hallveigarstöðum
Túngötu 14
101 Reykjavík