Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙ 5. desember 2017
„ÞAÐ MÁ EKKERT“ - Elísabet Jökulsdóttir
„Það eru allskonar venjulegir menn jafnvel vinir mínir að kvarta undan þessari metoo bylgju sem er í gangi, þeir segja „ekkert má maður“ og „hvað má eiginlega“ og ekkert má maður lengur.
Við þá vil ég segja, það má ekkert, maður biður um leyfi fyrir öllu;
Má ég sýna þér hvað ég var að skrifa.
má ég fá tannkremið, má ég fá mjólkina,
má ég knúsa þig, má ég fá lánaða húfuna þína..“