SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ritstjórn 7. mars 2018

Þetta eitthvað - Steingerður Guðmundsdóttir

Streingerður Guðmundsdóttir

Listvana skuggar
liðinnar
tíðar.
Ómvana
þytur.
Örfoka
ljóð.

Þó er þetta
eitthvað
innst í
ljóðsins kviku:
Frjómagn
kjarnans
fólgið
í þess
dul.

Þetta eitthað –
eitthvað – eitthvað
er tengir
lífi
öld
við öld.

 

Ása Jóhanns