SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir24. apríl 2018

Guðrún Helgadóttir hlaut Sögusteininn

Guðrún Helgadóttir hlaut á sunnudaginn Sögusteininn, heiðursverðlaun IBBY á Íslandi, fyrir framlag hennar til íslenskra barnabókmennta. Heiti verðlaunanna er sótt í gamla þjóðsögu um töfrastein sem gat sagt þeim sem fann hann endalausar sögur.

Guðrún hefur glatt bæði unga lesendur og aldna frá því að fyrsta bókin um Jón Odd og Jón Bjarna kom út árið 1974. Hún er vel að verðlaununum komin og er óhætt að taka undir með forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, sem sagði við afhendingu verðlaunanna að Guðrún væri „okkar Astrid Lindgren og Tove Jansson.“