SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir 1. maí 2018

Til hamingju með alþjóðlegan baráttudag verkalýðsins

Í tilefni af 1. maí birtum við ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur (1942-2016)

HÚM

Með húminu
kemur mýktin

raddirnar fá flauelsáferð
sjáöldrin verða fjólublá

í húminu er enginn sannleikur
engin trú
ekkert stríð

aðeins þessi mjúki dökki friður
augnanna
aðeins þessi kyrra mjúka dýpt
andartaksins

áður en myrkrið skellur á

Hvar sem ég verð, 2002

Mynd af Ingibjörgu: mbl.is