DREGIÐ VERÐUR UM RÖÐ ATBURÐA. Ljóð Ásdísar Ingólfsdóttur
Nú er að hefjast átak Bleiku slaufunnar 2022 og eru allir lesendur Skáld.is hvattir til að ljá baráttunni lið og festa kaup á slaufu.
Á heimasíðu Bleiku slaufunnar má lesa sögu Ásdísar Ingólfsdóttur sem hefur tvisvar greinst með brjóstakrabbamein og byggði reyndar sína fyrstu ljóðabók á þeirri reynslu. Bókin, Ódauðleg brjóst, kom út 2018 og hlaut tilnefningu til ljóðabókaverðlaunanna Maístjörnunnar. Hér má lesa ritdóm um bókina.
Auk tveggja frásagna af reynslu Ásdísar af því að greinast með brjóstakrabbamein birtir hún ljóð sem ber yfirskriftina Dregið verður um röð atburða á heimasíðu Bleiku slaufunnar. Ásdís hefur gefið Skáld.is góðfúslegt leyfi til að birta einnig þetta frábæra ljóð og minna um leið á árlegt átak Krabbameinsfélagsins, Bleiku slaufuna, sem tileinkað er baráttunni gegn krabbameini hjá konum.
Dregið verður um röð atburða
Lífið er að fæðast, lífið er að nærast, þroskast og hlæja, dýrka
pabba sinn, finna vonda lykt, kasta upp og plokka hor úr
nefinu. Lífið er að elska, missa tönn, passa lítil börn, hopp´ í
parís, fara í sund með systrunum.Ekki sleikja handriðið í frosti
Lífið er að kveljast, vera á blæðingum, fara í klippingu, tapa í
handbolta, verða bumbult á jólunum, hata bíómynd og elska
Bieberinn. Lífið er að skrópa í skólanum, skemmta skrattanum
án þess að meiða neinn, fara á fyllerí og gefa dauðann í allan
djöfulinn.
Ekki kasta steini í gróðurhús í Hveragerði
Lífið er að vita að maður er til og veðrið skánar, fara til Færeyja,
pæla í pólitík, vera í frænkuklúbb, fara fjandans til, að lokum
finna sig, klára námið sitt, vinna yfir sig. Lífið er að segja upp
kærasta, finna nýjan, missa fóstur, finna mann sem lyktar vel án
ilmefna, taka lán og eignast íbúð.
Ekki gleyma ljósunum á TrabbanumLífið er að þrauka um stund, kjósa forseta, verða gjaldþrota,
eiga son og eignast dóttur. Skipta um skoðun, hætta að reykja,
brjóta veggi, elska náungann og nesta barnið sitt. Lífið er að
hugsa um umhverfið, flokka ruslið sitt, rækta kanínur, læra
tungumál, eiga lítinn garð, kaupa í Ikea.
Ekki gleyma að skrúfa fyrir baðvatnið
Lífið er að finna æxli í vinstra brjóstinu, seinna hinu, vera hætt
komin, horfa á sjónvarpið, kveðja gamalt fólk, rek´inn nefið,
lesa bókmenntir og gamla reyfara. Lífið er að halda matarboð,
fara í fótbolta, njóta stundanna, drekka eðalvín, fara í skíðafrí
og skanna útsölur.Ekki henda eldspýtu í þurra sinu í Borgarfirði
Lífið er að lifa dauðann af og líka verkföllin, ala upp börn og
kannski barnabörn, sækj´um sumarhús og setja öðrum mörk.
Lífið er að grafa foreldra og líka systkini, vita allt og vita ekkert.
Lífið er að vera maður sjálfur, vera saman, vera sundur, vera til, þar til...
Ekki plana jarðarför í gríni