Steinunn Inga Óttarsdóttir∙ 4. október 2022
SKÁLD.IS Í FYRSTA KILJUÞÆTTI VETRARINS
Hluti ritstjórnar var í Græna herberginu í dag, við vorum að kynna vefinn fyrir áhorfendum fyrsta Kiljuþáttar vetrarins.
Við minnum á viðburðinn í Gunnarshúsi á laugardaginn kl 14 þar sem konur skrifa og skrafa; rautt og hvítt, kaffi og konfekt, ljóðalestur og ljúf samvera í haustlægðinni. Öll hjartanlega velkomin.
Minnum einnig á styrktarhnappinn hér beint fyrir ofan myndina af okkur - þetta ber sig ekki án framlaga frá góðhjörtuðum og bókelskum.