Soffía Auður Birgisdóttir∙26. nóvember 2026
MIRIAM PETRA NÝ Í SKÁLDATALINU

Miriam Petra Ómarsdóttir Awad sendi nýverið frá sér sína fyrstu ljóðabók sem nefnist Heiðríkja og hefur vakið verðskuldaða athygli. Kápa bókarinn er blá eins og heiðríkur himinn og í ljóðunum sjálfum ríkir tærleiki og heiðríkja.
Miriam á ættir að rekja vestur á Bíldudal í móðurætt og til Egyptalands í föðurætt og Heiðríkja er fyrsta útgefna bók hennar en áður hefur hún birt smásögu í vefritinu Stelk.
Við bjóðum Miriam Petru velkomna í Skáldatalið!
