
Miriam Petra Ómarsdóttir
Miriam Petra Ómarsdóttir Awad er fædd árið 1990 í Reykjavík. Hún á ættir að rekja vestur á Bíldudal í móðurætt og til Egyptalands í föðurætt.
Miriam lauk stúdentsprófi af fornmálabraut Menntaskólans í Reykjavík árið 2010. Hún var krýnd dragkóngur MR árið 2010 og lék í uppsetningu Herranætur á Meistaranum og Margarítu árið 2009. Hún lék jafnframt gestahlutverk í Skammarþríhyrningnum í Borgarleikhúsinu árið 2025.
Miriam er með BA próf í frönskum fræðum frá Háskóla Íslands. Á meðan náminu stóð dvaldist hún í einn vetur í Université Laval í Québec, Kanada en hún hefur auk þess búið í París í Frakklandi þar sem hún var starfsnemi hjá sendiráði Íslands. Miriam lauk meistaraprófi í hnattrænum fræðum árið 2020 frá Háskóla Íslands og diplómu í hagnýtum jafnréttisfræðum árið 2025 frá sama skóla.
Miriam hefur lengi ort ljóð, elstu ljóðin birtust á vefnum ljod.is en í seinni tíð einnig á hennar eigin heimasíðu. Þá hefur hún verið iðin við að skrifa greinar í dagblöð og á vefmiðla um fordóma og jafnréttismál og sinnt fræðslustörfum um slík málefni síðan 2021.
Miriam hefur einnig skrifað innslög í þætti fyrir Ríkisútvarpið, auk þáttar í fullri lengd um bréfaskriftir (50 grömm innanlands).
Miriam birti smásöguna „Hálfhringur“ í vefritinu Stelk árið 2025 og fyrsta ljóðabók hennar, Heiðríkja, kom út hjá Ós Pressunni árið 2026.
Ritaskrá
- 2026 Heiðríkja (ljóð)
Heimasíða
miriampetra.com
