SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir∙ 1. nóvember 2026

VIÐ HVERALUND

Nú er nýútkomin ljóðabók eftir höfundinn Ásthildi Helenu Gestsdóttir.

Í frétt frá Sæmundi útgefenda segir um bókina.

Eftir að æsir hafa kveðið upp dóm sinn og fjötrað Loka við Hveralund vakir Sigyn af tryggð yfir eiginmanni sínum. Saman bíða þau ragnaraka, þjökuð af þögninni og harminum sem samtengir þau.

Í ljóðabókinni Við Hveralund ljær höfundur persónum úr norrænni goðafræði rödd svo úr verður tregafullur ljóðabálkur. Hér horfast Sigyn og Loki í augu við fortíð sína og framtíð og gera upp stormasamt samband sitt.

Þetta er saga sem hefur verið sögð um aldir án þess að sjónarmið hinnar trúföstu konu hafi litið dagsins ljós.

Til hamingju með bókin.