SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Guðrún Steinþórsdóttir 6. desember 2021

NÝJAR LJÓÐABÆKUR

Nú í haust hafa komið út margar forvitnilegar ljóðabækur eftir konur en þar á meðal má nefna bækurnar Tanntaka eftir Þórdísi Helgadóttur, Kona lítur við eftir Brynju Hjálmsdóttur, Lofttæmi eftir Nínu Þorkelsdóttur og Verði ljós, elskan eftir Soffíu Bjarnadóttur.
 
 
Tanntaka er önnur bók Þórdísar en hún sendi frá sér smásagnasafnið Keisaramörgæsir árið 2018. Þórdís er þó ekki ókunnug ljóðforminu því hún er eitt af Svikaskáldunum en saman hefur sá skáldahópur sent frá sér þrjár flottar og feminískar ljóðabækur. Nú í haust kom út þeirra fyrsta sameiginlega skáldsaga; Olía. Þórdís var á dögunum tilnefnd til Fjöruverðlaunanna fyrir Tanntöku en í umsögn dómnefndar um verkið segir meðal annars: „Ljóðin eru marglaga og djúp og slá á fínustu hjartastrengi lesandans.“ Ljóðabók Þórdísar er ansi mögnuð en í henni yrkir skáldkonan meðal annars um börn, móðurhlutverkið og systralagið. Eitt ljóðanna nefnist „Eðluheilinn“ og hljómar á þessa leið:
 
 
 
Sumt vitum við með gatinu í miðjum heilanum á kolkrabbanum
þar sem mænan kemur í gegn eins og við lásum um í bók einu
sinni fyrir löngu
 
Sumt vitum við
á nóttunni
Sumt vitum við
á mottunni
 
Sumt vitum við
undir rifbeinunum
Sumt vitum við
á þjóðveginum
 
Sumt vitum við
í þeoríunni
Sumt vitum við
í píkunni
 
Sumt vitum við
með öðrum
Sumt vitum við
með seimingi
 
Sumt vitum við
í augnablikinu
Sumt vitum við
í staðinn fyrir annað
verra
 
Þetta vitum við
í bili:
 
Kolkrabbinn hefur átta arma
og hver þeirra veit varla hvað hinir hafast að
fyrr en á mögru árunum
 
þegar einn tekur annan fyrir bráð
 
 
Brynja sló í gegn með sinni fyrstu ljóðabók Okfrumunni og gefur hin nýja bók hennar, Kona lítur við, þeirri fyrri ekkert eftir. Nýja bókin skiptist í þrjá hluta, 1) Óramaðurinn; 2) Kona lítur við; og 3) Í borg skækjunnar. Í fyrsta hluta er sjónum beint að karlmennskunni, í öðrum hluta hljóma ólíkar kvenlegar raddir á meðan að lokahlutinn fjallar um kvenlega útópíu. Samkvæmt Brynju er ljóðabókin „kerlingarbók, ágengt feminískt ljóðverk“ og er það sannarlega góð lýsing á verkinu. Ljóðið „Loforð“ er í öðrum hluta bókarinnar og er á þessa leið:
 
 
Kona stingur
fingrunum inn
 
um rist
á risavöxnu fiskabúri
 
Digrir píranafiskar
naga undurblítt
í puttana
 
narta gegnum hold
gegnum fingur og lófa
kljúfa handlegginn í tvennt
 
En það gerir ekkert til
grær áður en hún giftir sig
 
 
 
Lofttæmi er fyrsta ljóðabók Nínu en fyrir þetta stórgóða byrjendaverk hlaut hún Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Nína er meðal annars menntuð í klassískri tónlist en sá bakgrunnur markar ljóðabók hennar eins og kemur glögglega fram í umsögn dómnefndar Nýræktarstyrksins: „Ljóðabókin Lofttæmi geymir athuganir á andardrætti, lífmagni og tónlistinni í tilverunni. Skynjun á tilvist og umhverfi er miðlað af næmri tilfinningu en allt er þetta jafnframt skoðað af vísindalegri nákvæmni á heillandi hátt. Lífverur, jörð og loft eru sett undir smásjá í ljóðum sem birta ferska sýn á líf í hverfulum heimi.“ Bókin er þrískipt en í öðrum hluta hennar; hljómsveitarstjóri dregur andann, ber tónlistina gjarnan á góma eins og til að mynda í ljóði númer „18“:
 
 
 
 
boraði göt í tónsprotann minn
svo ég gæti spilað á hann eins og flautu
 
ég sveifla honum ekki lengur
ég anda í hann
 
á móti
endurlífgar hann mig
teymir mig í helli
sem ég var búin að gleyma
að væri til
 
 
 
Verði ljós, elskan er þriðja ljóðabók Soffíu en hún hefur einnig sent frá sér skáldsögurnar Hunangsveiði og Segulskekkja auk þess sem leikrit hennar Erfidrykkjan hefur verið sett á svið. Nýja ljóðabókin er einkar áhrifamikil en eins og kemur fram í kynningu verksins er þar víða komið við: „Frásögn í ljóðum um flöktandi ljós milli svefns og vöku, milli kynslóða, um hringekju og fíkn, elskendur, leyndarmál, heilaga skál sem brotnar, tundurdufl.“ Eitt ljóðanna nefnist „Jarðsamband“ og hljómar svona:
 
 
Hlý morgunbirta
nístir mig að innan.
 
Ég eða eitthvað annað
stjörnur á himni
 
sem færast nær
innar.
 
Er tilbúin að gefa allt,
demantar eiga sér felustað
 
í kirkjugarði.
Það stirnir á
 
allt sem fær hvíld.
 
 
Ljóðabækur Þórdísar, Brynju, Nínu og Soffíu eru ólíkar en eiga það þó sameiginlegt að vera margræðar, áhugaverðar og vekja upp allskyns tilfinningar. Einn lestur dugir skammt því í hverri lestrarheimsókn má finna eitthvað nýtt og spennandi.