SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir 1. júní 2025

ÖLDUR RÍSA Á SJÓMANNADAGINN

Óska­lög sjó­manna nutu gífurlegra vinsælda á fyrri árum og lögðu mörg við hlustir þegar þau voru á dagskrá í Ríkisútvarpinu á árunum 1956 til 1990. Trúlega er óhætt að fullyrða að enn lifi mörg þeirra góðu lífi, a.m.k. á meðal eldri kynslóðanna. 

Samkvæmt Rósu Margréti Húnadóttur þjóðfræðingi einkennast þau sjómannalög sem nutu mestra vinsælda á fimmta og sjötta áratugnum af hetjuímynd sjómannsins. Síðar meir hafi þó þessi rómantíska ímynd sjómennskunnar og verbúðarlífs tekið talsverðum breytingum í meðförum Bubba Morthens.

Það þarf kannski ekki að koma á óvart að þær séu ekki ýkja margar skáldkonurnar sem eiga texta um hressa sjómenn sem stíga reifir ölduna og eiga jafnvel konu í hverri höfn. Það má þó nefna Þulu Ólínu Andrésdóttur um Geirfuglasker, sem þekkist mun betur undir yfirskriftinni Suðurnesjamenn. Hér má lesa Þulu í fullri lengd.

Önnur kona á texta við vinsælt sjómannalag, sem ber titilinn Öldur rísa, en það er Herdís Guðmundsdóttir (1912-1978). Herdís var mjög skáldmælt en það hefur ekkert komið út eftir hana á bók og ekki er margt um hana að finna í netheimum. Í minningargrein má þó sjá að Herdís hefur verið mjög tengd sjómennsku því bæði faðir hennar og eiginmaður stunduðu sjóinn.

Herdís fæddist 23. nóvember árið 1912. Foreldrar hennar voru Guðrún Magnúsdóttir og Guðmundur Jónsson, Syðsta-Mói í Fljótum, en hann var kunnur skipstjórnarmaður á yngri árum. Herdís fluttist með foreldrum sínum til Siglufjarðar árið 1936 og bjó þar síðan.

Herdís lauk gagnfræðanámi í Vestmannaeyjum, fór síðan utan og nam í Svíþjóð ásamt því að ferðast nokkuð um Þýskaland. Þegar hún sneri aftur vann hún lengi á skrifstofu Siglufjarðarbæjar og síðan á skattstofunni. 

Herdís var greind og fjölhæf gáfukona. Hún var góður hagyrðingur og vel þekkt fyrir gamanvísur sínar og skemmtiþætti. Hún var félagslynd, tók virkan þátt í starfi slysavarnarfélagsins og fylgdi jafnaðarmönnum í pólitík. Árið 1949 giftist hún Páli Pálssyni skipstjóra og eignuðust þau tvo syni, Jón Gunnar og Guðmund. Herdís lést 31. janúar árið 1978.

Annar sonur Herdísar, Jón Gunnar Pálsson, var svo vænn að senda mér ljóð Herdísar, því það hefur ekki verið gefið út á bók og er hvergi að finna á víðáttum netsins, en fallegt er það!

 

Öldur rísa
 
Draumur æsku,
ókunn lönd.
Anna litla,
alla tíð ég man.
er haf seiddi mig,
seiddi mig til sín.
þá fór ég burtu,
Frá þér.
 
Öldur rísa,
himinhátt.
Kyssir vanga,
oft hinn salti sjór.
Ekki lýsa ljós,
og löng er nótt.
Ó viltu hugsa,
viltu hugsa,
til mín.
 
Árin líða,
hægt og hægt.
Anna litla,
æskuvina mín.
Öll mín innsta þrá,
er bundin þér.
Ég er að koma,
er að koma,
til þín.

 

Hér má hlusta á lagið Öldur rísa.

 

Tengt efni