Magnea Þuríður Ingvarsdóttir∙ 6. maí 2026
LJÓÐAÐ Á MAÍ 1934
Hulda orti:
Ljóðað á maíNafn þitt, Maí, er mörgum kært,marga sól þín gleður.En oft hafa vini sárum særtþín sviplegu kuldaveður.Samt hef ég alltaf unnað þér,um þig dreymt í snjónumog þú komst á móti mérmildur, á grænum skónum.Dagana fyrstu dreymdi alltdögg og gróna velli.Nú er aftur orðið kalteins og á Þorrasvelli.Maí, hvar er miskunn þín?Mjúku frjósa stráin,sætur fuglasöngur dvín,sólin virðist dáin.Sumarið okkar er svo stutt,að við naumast megumvið, að mark þess verði flutt,vorsins argað eigum.Af því þú ert elskaður,athvarf þúsund vona,kæri Maí-ma´nuður,máttu ei reynast svona.

