Sólveig Kr. Einarsdóttir
Sólveig Kristín Einarsdóttir er fædd í Reykjavík 24. nóvember 1939. Foreldrar hennar voru Einar Olgeirsson og Sigríður Þorvarðsdóttir og ólst Sólveig upp í Norðurmýrinni. Hún varð stúdent frá MR árið 1959 og lauk BA prófi frá HÍ í dönsku, sögu, kennslu- og uppeldisfræðum. Sólveig var framhaldsskólakennari, fyrst við gagnfræðadeildir Vogaskóla og síðan Menntaskólann við Sund til ársins 1990. Hún tók þátt í útgáfu ýmis námsefnis í dönsku fyrir Námsgagnastofnun Ríkisins ásamt orðabók í dönsku.
Sóveig fór í örlagaríka hópferð til Grikklands árið 1988 þar sem hún hitti seinni eiginmann sinn á grísku eyjunni Hydra. Í kjölfarið fluttist hún búferlum til Nýju Suður Wales í Ástralíu árið 1990. Þar stundaði hún ritstörf og nautgriparækt jöfnum höndum.
Sólveig hefur skrifað fjölda greina um Ástralíu, lýst staðháttum og stjórnmálaástandi þar og auk þess sagt frá ferðalögum um Indónesíu, Kína, Japan og Nýja Sjáland. Hún skrifaði fyrst í Þjóðviljann, Vikuna og fleiri tímarit og síðan í Morgunblaðið og Lesbók Morgunblaðsins.
Sólveig fékk verðlaun Almenna bókafélagsins árið 1991 fyrir Sögur Sólveigar sem hefur að geyma sextán smásögur.
Sólveig hefur sent frá sér smásagnasafn og fjórar barnabækur, auk minningabókar um föður sinn. Þá hefur hún einnig birt sögur og ljóð í blöðum og tímaritum.
Sólveig á tvö börn, Eddu og Einar frá fyrra hjónabandi. Barnabörnin eru fimm.
Ritaskrá
2017 Amma, ég er hræddur
2016 Amma í ástralskri sveit
2005 Hugsjónaeldur. Minningar um Einar Olgeirsson
1999 Amma mín kann að fljúga
1997 Snædís í Sólskinslandinu
1991 Sögur Sólveigar
Verðlaun og viðurkenningar
1991 Verðlaun Almenna bókafélagsins fyrir Sögur Sólveigar