SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir22. mars 2026

GETUR MANNESKJA BREYST Í FUGL? - Maðurinn í skiltinu eftir Maríu José Ferrada

María José Ferrada. Maðurinn í skiltinu. Íslensk þýðing Jón Hallur Stefánsson. Angústúra 2025. 145 bls.

 

Maðurinn í skiltinu eftir Maríu José Ferrada kom út í fyrra í þýðingu Jóns Halls Stefánssonar. Áður hafði komið út bókin Kramp eftir sama höfund. Þetta eru enn fremur fyrstu tvær skáldsögur Maríu José fyrir fullorðna en hún hefur skrifað yfir 50 bækur fyrir börn og unglinga og þar á meðal ljóð.  

María José fæddist árið 1977 í Chile. Hún er blaðakona, rithöfundur og skáldkona og hafa verk hennar verið þýdd yfir á fjölda tungumála. Þá hefur hún hlotið ýmis verðlaun fyrir verk sín. Maðurinn í skiltinu nefnist á spænsku El Hombre del Cartel og kom hún út í Chile árið 2021.  

Í stuttu máli fjallar sagan um mann sem ákveður að setjast að i stærðarinnar Coca Cola skilti sem hann tekur að sér að vakta. Þessi hegðun hans er litin hornauga af nágrönnunum og þykir stafa ógn bæði af honum og heimilislausa fólkinu sem hefur hreiðrað um sig í nágrenninu. 

Þessi sérstaka hegðun mannsins er ekki úr lausu lofti gripin heldur sótt í raunverulegan atburð. Í chilenska tímaritið The Clinic rataði frétt um mann sem gerði slíkt hið sama; hann kom sér fyrir í 16 metra háu auglýsingaskilti og var búinn að dvelja þar í tvö ár þegar fréttin birtist árið 2008. Kona hans sagði hann orðinn heldur dulrænan og drykkfelldan en þarna fyndist honum hann vera frjáls. Jón Hallur segir í eftirmála bókar að nágrannarnir hafi kallað hann fuglamanninn (bls 147).

Titillinn á enskri þýðingu bókarinnar er How to turn into a bird. Það fer nokkuð vel á þessu heiti þar sem talsvert er um vísanir til fugla í sögu Maríu José og tvisvar er áréttaður munurinn á milli fugls og manneskju í orðabókarstíl:

Fugl: Flokkur hryggdýra, fleygur og fiðraður.
Maður: Vitiborin vera, karl eða kona. Hinn forsögulegi maður.
 
(bls. 52, 103) 

 

Manneskja og fugl eru hvor sín dýrategundin og því er ekkert eðlilegt við það þegar vitiborin vera fer að haga sér eins og fleygt hryggdýr. Þegar manneskja yfirgefur heimili sitt og allar reglur samfélagsins, og hreiðrar um sig í margra metra háu skilti, er ekki lengur hægt að treysta á að hún hagi sér eins og siðuð manneskja. Hún býr eins og dýr merkurinnar, líkt og heimilislausa fólkið. og er því orðin varhugaverð. Það er ekkert eðlilegt við það að manneskja fari að haga sér eins og fugl sem er af allt öðrum flokki dýra. Manneskja getur því ómögulega breyst í fugl - eða hvað? 

Líkt og fyrr segir hefur María José skrifað fjölda barnabóka og í skáldsögunum heldur hún sjónarhorni barnsins. Í Manninum í skiltinu gerir þessi nálgun að verkum að alvarlegir atburðir, og eymdin sem að baki býr, fá á sig einfaldari og skýrari mynd en ella. Fullorðinn lesandi gerir sér mun betri grein fyrir hvað á gengur heldur en drengurinn sem segir söguna og er fyrst og fremst upptekinn að því að vera 11 ára. Einföld og fordómalaus heimsmynd hans er sveipuð ævintýrablæ sem blandast  heimspekilegum pælingum höfundar og afar ljóðrænum stíl svo að úr verður áhrifamikill yndislestur.

Tengt efni