SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir∙ 6. nóvember 2026

Minnast, muna / meitla og fægja

Þórhildur Ólafsdóttir fer ekki með fleipur í frásögnum úr fjarlægum bernskuheimi sínum í nýlegri bók, Með minnið á heilanum,sem kom út 2025 hjá bókaforlagin Uglu. Áður hefur Þórhildur sent frá sér mjög svo eftirtektarverða bók, Efndir ( 2023) og ljóðabókina Brot úr spegilflísum (2020) auk þýðinga (Annie Arneaux) og hefur nýlega sent frá sér skáldsögu. Á milli fyrstu bókanna þriggja liggja augljósir þræðir og þemu og í eftirmálanum kemur skýrt fram að nýja bókin er þriðji hlutinn í þríleik um bernsku og minni, skynjun og sjónarhorn.

Sagan hefst á samnefndu ljóði þar sem m.a. eru þessar hendingar: “…Þó ekki sé hægt að endurlifa þá stund / örlítils barns sem stendur í flæðarmáli / má njóta hennar aðeins – og minnast, muna, / meitla og fægja…” Það er einmitt það sem er gert í þessari bók, atvika og fólks er minnst á meitlaðan og fágaðan hátt, allt ritað í nútíð og á fallegu máli (og víða eru semikommur notaðar, sem eru jú vandmeðfarnar).

Sögurnar eru tilraun til að draga fram í dagsljósið fáeinar brotakenndar minningar, segir hógvær höfundurinn í eftirmálanum. Allir fæddir eftir miðja síðustu öld kannast væntanlega við umhverfið sem lýst er: bóndabærinn, útihúsið og fjósið, hlýtt eldhús og kalt búr, svefnherbergi með ömmubóli, norðurstofa með bókahillum. Lífið líður hægt áfram í takt við árstíðir og tilheyrandi bústang. Sumarið líður hraðast, þá koma gestir sem eru kærkomin tilbreyting og sá kafli (“Sumargestir 1958-1969”) er þéttur og myndrænn, gæti verið smásaga. En lífið í sveitinni er ekki auðvelt, mamma er alltaf önnum kafin og þreytt: “Mamma er oft lúin þegar hún er að sauma, jafnvel lítill stelpukrakki finnur það, því að þá getur hún orðið önug og viðutan… ” (96). Samt gaf hún sér tíma til að gleðja börnin sín, hún saumaði eitt sumarið handa þeim tjald úr hveitipokum og minningin er sterk og falleg og þrungin þakklæti:

“Minningin um gleðina í kringum tjaldið er dásamleg, ein af þeim bestu sem ég á frá því ég var svona fimm til sjö ára. Það er sumar og við systurnar færum dívanana okkar út í tjaldið ásamt ýmsu dóti og fáum að sofa þar fáeinar nætur. Eftir meir en sextíu ár get ég enn munað þykku trésúlurnar sem héldu tjaldinu uppi, grasið á tjaldgólfinu; hvernig dívanarnir stóðu hvor við sinn tjaldvegginn og dótið sem við settum þangað inn; mjúka, dempaða birtuna sem barst í gegnum hveitipokaþakið og veggina. Gleðina sem fylgir því að vera til í tjaldi sem stendur á rananum sem liggur suður frá bænum að læknum. Þó ekki sé nema fyrir þetta tjald sem hún saumaði handa okkur á mamma mínar hlýjustu þakkir skildar og þó það sé of seint, sendi ég henni þær núna og hugsa sterkt til hennar… ” (96-97).

Í kaflanum um ferðalagið með Kristni afa setjast óbyggðirnar að í barnshjartanu. Allar myndirnar sem afi tók á vélina sína eyðilögðust í framköllun, hann er löngu dáinn og eina minningin um ferðin er í þessari bók.

Skemmtilegur er kafinn um bækurnar (1957-1963), þegar barnið lærði að lesa með bandprjónsaðferðinni og varð óseðjandi bókalesari upp frá því. Gott var að leita í gamla bókaskápinn, dökkan með glerhurðum, þar sem voru m.a. Íslendingasögur, “fallegar á kilinn með gylltum stöfum” (127). Ljóð voru líka lesin og auðvitað var amman með rímur og tækifærisvísur á vörunum. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft, aldrei er brýnna en nú að hafa gott mál, sögur og vísur fyrir börnunum okkar ef við viljum halda áfram að tala íslensku í þessu landi.

Þórhildur litla vex og dafnar í sveitinni sinni, þroskast við gott atlæti, dýr og fólk og bækur. En veröld bernskunnar er veröld sem var – fjarlæg og gleymd þótt ekki séu liðin nema 50-60 ár frá því hún var daglegur veruleiki. Minningar leita síðan alltaf á, t.d. þegar sorgin knýr dyra.

“Minningar eru ævinlega litaðar af svo mörgu: af lýsingum annarra á því sem var; því sem kemur fyrir mann síðar á ævinni: hvernig heilinn vinnur sjálfur á löngum tíma úr því sem gerðist. Hann útilokar eitt en leggur áherslu á annað, svo mjög að það er gersamlega ómögulegt að segja “satt” frá, enda reikna ég ekki með að “sannleikurinn” sé til í minningaskrifum. Í mínum sögum er ekkert hlutleysi að finna, þetta eru upplifanir mínar, eingöngu mínar, sagðar frá mínu eigin sjónarhorni” (155).

Hvort sem sögurnar eru “sannar” eður ei, skilja þær eitthvað gott eftir í hjartanu. Það er ekkert krumsprang, tiktúrur eða tilgerð í þessum sögum. Þær bara eru og virka í einfaldleika sínum.

Tengt efni