SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Guðrún Guðlaugsdóttir

Guðrún Guðlaugsdóttir fæddist í Reykjavík 20. júlí 1944. Foreldrar hennar voru Þorgerður Nanna Elíasdóttir og Guðlaugur M. Einarsson hæstaréttarlögmaður.

Guðrún tók próf úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1967 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1977.

Guðrún starfaði fyrst sem leikari, síðar við dagskrárgerð og fréttamennsku hjá Ríkisútvarpinu. Var blaðamaður hjá Morgunblaðinu í 25 ár.

Guðrún hefur sent frá sér ævisögur, viðtalsbækur, skáldsögur, smásögur og eina ljóðabók. Á síðustu árum hefur hún skrifað átta sakamálasögur, þar sem aðalpersónan er um blaðakonan Alma Jónsdóttir sem lendir í ýmsum ævintýrum.

Guðrún á sex börn, Ragnheiði, Ásgerði, Móeiði, Kristinn, Guðlaug og Sigríði Elísabetu. Hún er gift Guðmundi Páli Arnarsyni bridgekennara og blaðamanni.


Ritaskrá

  • 2022   Mannsmyndin
  • 2021   Ættarmótið
  • 2020   Hús harmleikja
  • 2019   Barnsránið
  • 2018   Erfðaskráin
  • 2017   Morðið í leshringnum
  • 2016   Dauðinn í opna salnum
  • 2016   Í hörðum slag: Viðtöl við fimmtán blaðamenn. Blaðamannafélag Íslands
  • 2015   Blaðamaður deyr
  • 2014   Beinahúsið
  • 2009   Sá á skjöld hvítan: Viðtalsbók við Jón Böðvarsson
  • 2000   Nærmynd af Nóbelsskáldi: Fimm viðtöl í viðtalsbók í ritstjórn Jóns Hjaltasonar
  • 2000   Í órólegum takti
  • 1999   Kvöldvakan: Smásaga
  • 1994   Góður skáti: Smásaga í smásagnasafninu Tundur dufl
  • 1993   Nellikur og dimmar nætur
  • 1993   Þegar hugsjónir rætast: Nokkur viðtöl í ævisögu Odds Ólafssonar/Gils Guðmundsson
  • 1990   Skip vonarinnar: Ljóð
  • 1990   Það hálfa væri nóg: Lífssaga Þórarins Tyrfingssonar
  • 1988   Á leið til þín: Ljóð
  • 1978   Í veiðihug: Æviminningar Tryggva Einarssonar í Miðdal