SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Halla Þórlaug Óskarsdóttir

Halla Þórlaug Óskarsdóttir er fædd í Reykjavík 1988 og alin upp í Þingholtunum.

Halla Þórlaug lauk BA prófi í myndlist við Listaháskóla Íslands 2012 og MA prófi í ritlist við Háskóla Íslands árið 2014.

Halla Þórlaug hefur starfað sem dagskrárgerðarmaður á Rás 1, sem umsjónarmaður Víðsjár, Tengivagsnins og Bókar vikunnar auk þess að fjalla um einstaka bækur í þættinum Orð um bækur.

Halla Þórlaug er bæði textahöfundur og myndhöfundur. Hún hefur fengist við margar ólíkar tegundir bókmennta, skrifað ljóð, sögur og leikverk.

Fyrir ljóðsögu sína Þagnarbindindi hlaut Halla nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta árið 2020 og Maístjörnuna, ljóðabókaverðlaun, fyrir sömu bók ári síðar.

 


Ritaskrá

  • 2020  Ertu hér? (sviðsverk, í samvinnu við Ásrúnu Magnúsdóttur)
  • 2020  Þagnarbindindi
  • 2017  Hún pabbi (sviðsverk í samvinnu við Trigger Warning)
  • 2016  Svefngrímur (útvarpsleikrit flutt á Rás 1)
  • 2014  Flæðarmál (ásamt fleiri höfundum)
  • 2011  Agnar Smári: Tilþrif í tónlistarskólanum

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2021  Maístjarnan fyrir Þagnarbindindi
  • 2020  Nýræktarstyrkur Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir Þagnarbindindi