![](https://skald.is/rails/active_storage/representations/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaHBBa1FJIiwiZXhwIjpudWxsLCJwdXIiOiJibG9iX2lkIn19--cc70c55b32e59e6c571088b74b3dc4adde7282ff/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaDdDem9VYzJGdGNHeHBibWRmWm1GamRHOXlTU0lLTkRveU9qQUdPZ1pGVkRvTWNYVmhiR2wwZVdsYU9ncHpkSEpwY0ZRNkRtbHVkR1Z5YkdGalpVa2lDVXBRUlVjR093WlVPZzlqYjJ4dmNuTndZV05sU1NJSmMxSkhRZ1k3QmxRNkRHTnZiblpsY25RdyIsImV4cCI6bnVsbCwicHVyIjoidmFyaWF0aW9uIn19--025048454440a4ffbe1bfbd2ffec4bffda87ad8b/91c302_f96494f478fb4b1facdcecff2ad99945~mv2.jpg)
Hallfríður Ólafsdóttir
Hallfríður fæddist í Reykjavík 12. júlí 1964.
Hallfríður var höfundur og listrænn stjórnandi fræðsluverkefnisins um Maxímús Músíkús. Bækur hennar um Maxímús hafa komið út á átta tungumálum. Vel yfir hundrað tónleikar byggðir á sögunum hafa verið haldnir af sinfóníuhljómsveitum víða um heim, m.a. í New York, Washington, LA, Berlín, Stokkhólmi, Kuala Lumpur og Melbourne. Hallfríður starfaði lengi með KÍTÓN – Félagi kvenna í tónlist og sat í fyrstu stjórn þess. Í febrúar 2020 stjórnaði hún hljómsveit sem flutti tónlist eftir gleymdar konur fyrri alda.
Hallfríður gekk í Kársnesskóla í Kópavogi og Kvennaskólann í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík. Hún lauk bæði einleikaraprófi og blásarakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og framhaldsprófum frá Royal Northern College of Music og Royal Academy of Music. Auk þess tók hún einkatíma í París. Hallfríður var leiðandi flautuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún er stofnandi kammerhópsins Camerarctica og sinnti uppfræðslu ungs tónlistarfólks, bæði í flautuleik, m.a. við Menntaskóla í tónlist, Tónlistarskóla Garðabæjar og Listaháskólann, og með þjálfun tréblásaradeilda ýmissa sinfóníuhljómsveita ungliða, m.a. Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Síðustu árin sinnti hún í auknum mæli hljómsveitarstjórn og stjórnaði tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna, Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins og bæði Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Austurlands, auk þess að hafa stjórnað ýmsum minni hópum.
Hallfríður lést á líknardeild Landspítala, 4. september 2020.
Mynd: Forlagið
Ritaskrá
- 2018 Maxímús Músíkús fer á fjöll
- 2014 Maxímús Músíkús kætist í kór
- 2012 Maxímús Músíkús bjargar ballettinum
- 2010 Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann
- 2008 Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina
Verðlaun og viðurkenningar
- 2020 Heiðursviðurkenning frá Garðabæ fyrir mikilvægt framlag til menningar og lista
- 2019 Heiðursviðurkenning útflutningsverðlauna forseta Íslands fyrir einstakt framlag til að auka hróður Íslands á erlendri grund
- 2017 Eldhugi ársins frá Rótaryklúbbi Kópavogs
- 2014 Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir frumkvöðlastarf í þágu tónlistarfræðslu
- 2003 Bæjarlistamaður Garðabæjar
- 2002 Heiðursnafnbótin Associate of the Royal Academy of Music í London