SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Hildur Eir Bolladóttir

Hildur Eir Bolladóttir er fædd í Laufási við Eyjafjörð þann 25. apríl árið 1978. Foreldrar hennar eru Matthildur Jónsdóttir og Bolli Þórir Gústavsson sem er látinn.

Hildur ólst upp í Laufási en flutti um fermingu með foreldrum sínum að Hólum í Hjaltadal. Hún lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri vorið 1999 og kenndi í framhaldinu í einn vetur við Brekkuskóla á Akureyri uns hún innritaðist í guðfræðideild Háskóla Íslands og lauk þar Cand theol prófi vorið 2005. Hún hefur verið starfandi prestur við Laugarneskirkju í Reykjavík og Akureyrarkirkju þar sem hún er enn við störf.

Hildur Eir hefur verið virkur pistlahöfundur og hafa skrif hennar birst á hinum ýmsu net og prentmiðlum. Auk þess hafði hún um nokkurra ára skeið umsjón með sjónvarpsþættinum Milli himins og jarðar á sjónvarpsstöðinni N4 en í þeim þáttum ræddi hún við fólk um margskonar lífsreynslu og nýtti þar þekkingu sína úr preststarfinu til að eiga við fólkið djúp og gefandi samtöl.

Hildur Eir gaf út bókina Hugrekki - sögu af kvíða árið 2016 sem hlaut lofsamlega dóma og var tilefnd til Fjöruverðlauna. Síðan hefur hún sent frá sér nokkrar ljóðabækur og smásögu í Pastelritröðinni.


Ritaskrá

  • 2026  Harmurinn í hlátrinum (ljóð)
  • 2026  Prestur fer á stefnumót (smásaga)
  • 2022  Meinvarp (ljóð)
  • 2019  Líkn (ljóð)
  • 2016  Hugrekki - saga af kvíða

 

Tilnefningar

  • 2017  til Fjöruverðlaunanna fyrir Hugrekki - saga af kvíða