![](https://skald.is/rails/active_storage/representations/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaHBBczBIIiwiZXhwIjpudWxsLCJwdXIiOiJibG9iX2lkIn19--9e0aa30ad3c42fdc4a7fed994e69fdd3ebe51ce1/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaDdDem9VYzJGdGNHeHBibWRmWm1GamRHOXlTU0lLTkRveU9qQUdPZ1pGVkRvTWNYVmhiR2wwZVdsYU9ncHpkSEpwY0ZRNkRtbHVkR1Z5YkdGalpVa2lDVXBRUlVjR093WlVPZzlqYjJ4dmNuTndZV05sU1NJSmMxSkhRZ1k3QmxRNkRHTnZiblpsY25RdyIsImV4cCI6bnVsbCwicHVyIjoidmFyaWF0aW9uIn19--025048454440a4ffbe1bfbd2ffec4bffda87ad8b/6d7981_f2d92682b50448e0983a1b8e4e62567d~mv2.jpg)
Arndís Lóa Magnúsdóttir
Arndís Lóa Magnúsdóttir er fædd árið 1994 og býr í Vesturbæ Reykjavíkur.
Arndís er með BA próf í frönsku og almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og stundar meistaranám í þýðingafræði við sama skóla. Hún hefur unnið við þýðingar úr frönsku og norðurlandamálum.
Arndís Lóa hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir fyrstu ljóðabók sína, Taugaboð á háspennulínu. Bókin kom út árið 2020 en eins og segir í kynningu hennar er hún „tvískipt ljóðabók um tjáningu og einangrun með lifandi myndum og marglaga tengingum sem koma á óvart. Fyrri hlutinn fjallar um samband ómálga barns og eldri manneskju sem er að tapa málinu. Í seinni hluta skoðar ljóðmælandi umhverfi sitt og þrár samhliða vísindalegum skýringum á náttúrunni.“ Ljóðabókinni var mjög vel tekið en hún hlaut tilnefningu til Maístjörnunnar.
2022 kom út önnur ljóðabók Arndísar Lóu, Skurn.
Ritaskrá
- 2022 Skurn
- 2020 Taugaboð á háspennulínu
Verðlaun og viðurkenningar
- 2020 Nýræktarstyrkur Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir Taugaboð á háspennulínu
Tilnefningar
- 2021 Til Maístjörnunnar fyrir Taugaboð á háspennulínu
Þýðingar
- 2022 Kim Thúy: Ru
- 2021 Vanessa Springora: Samþykki (ásamt Guðrúnu Vilmundardóttur)