Lára Garðarsdóttir
Lára Garðarsdóttir er fædd í Reykjavík 21. ágúst 1982. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 2001, diplómunámi í klassískri teikningu og BA í kvikun (Character Animation) frá háskólanum í Viborg, Danmörku, árið 2008.
Lára hefur breiða starfsreynslu og hefur starfað við helstu miðla frásagnargerðar, allt frá bókum upp í bíóskjái. Hún hefur að auki starfað sem stundakennari í teiknideild Myndlistarskólans í Reykjavík.
Hún hefur myndskreytt eigin bækur sem og sögur annarra.
Lára býr og starfar í Reykjavík
Ritaskrá
- 2021 Þegar ég verð stór
- 2019 Blesa og leitin að grænna grasi
- 2018 Bear With Me (Flökkusaga á ensku)
- 2016 Flökkusaga
Verðlaun og viðurkenningar
2017 Viðurkenning IBBY fyrir Flökkusögu