![](https://skald.is/rails/active_storage/representations/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaHBBdE1JIiwiZXhwIjpudWxsLCJwdXIiOiJibG9iX2lkIn19--1f569e9962ff071172c22a57674322b0132a54f1/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaDdDem9VYzJGdGNHeHBibWRmWm1GamRHOXlTU0lLTkRveU9qQUdPZ1pGVkRvTWNYVmhiR2wwZVdsYU9ncHpkSEpwY0ZRNkRtbHVkR1Z5YkdGalpVa2lDVXBRUlVjR093WlVPZzlqYjJ4dmNuTndZV05sU1NJSmMxSkhRZ1k3QmxRNkRHTnZiblpsY25RdyIsImV4cCI6bnVsbCwicHVyIjoidmFyaWF0aW9uIn19--025048454440a4ffbe1bfbd2ffec4bffda87ad8b/ededfd_c480ba3ecd284166950d4e6ba03bca7e~mv2.jpg)
Sigrún Björnsdóttir
Sigrún Björnsdóttir fæddist á Seyðisfirði 19. september 1956.
Sigrún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1977 og útskrifaðist með meistarapróf í samfélags- og fjölmiðlafræðum frá Háskólanum í Hróarskeldu 1987. Þá hefur hún lokið meistaraprófi í upplýsingatækni og netmiðlun. Sigrún stundar nú nám í ritlist við HÍ.
Sigrún vann sem fréttamaður á Ríkisútvarpinu frá árinu 1987-1999 og gerði jafnframt fléttuþætti og fréttaskýringar. Hún hefur starfað sem háskólakennari, sérfræðingur og upplýsingafulltrúi, m.a. hjá Íslenskri erfðagreiningu, á Norðurlandaskrifstofu og hjá Reykjavíkurborg. Þá hefur hún unnið sem fréttaritari fyrir norrænu fréttastofuna Ritzau, sem þýðandi og greinahöfundur.
Sigrún hefur skrifað ljóð frá unga aldri og birtust þau fyrstu á níunda áratug síðustu aldar, m.a. í tímaritinu Teningi og blaðinu Pavillionen sem gefið var út í Kaupmannahöfn. Hún hefur gefið út þrjár ljóðabækur og þá hafa birst eftir hana ljóð á ljod.is, á ljóðavef Jónasar Hallgrímssonar og í ljóðasöfnum og tímaritum, m.a. í Perlum úr ljóðum íslenskra kvenna sem Forlagið gaf út.
Sigrún er gift Garðari Garðarssyni og eiga þau tvær dætur; Eddu Ýri f. 1976 og Sögu f. 1987 og fimm barnabörn.
Ritaskrá
- 2023 Veltigrjót
- 2020 Loftskeyti
- 2014 Höfuðbending
- 2008 Blóðeyjar
- 2002 Næturfæðing