Vala Þórsdóttir
Vala Þórsdóttir er fædd 22. júlí 1968.
Vala útskrifaðist frá Bretton Hall College, University of Leeds með BA gráðu í leiklist og ritun árið 1995. Hún lærði einnig handritaskrif hjá North by Northwest og hefur tekið masterclass hjá Stephen Frears, Laurie Hutzler, Jon Vorhaus og Stig Thorsboe.
Vala vinnur jöfnum höndum að leikritun, handritagerð fyrir sjónvarp og kvikmyndir og skáldsögum og ljóðum.
Bækur hennar og leikrit hafa verið tilnefnd og unnið til ýmissa verðlauna, þar á meðal Fjöruverðlaunanna, Grímuverðlaunanna og verið á heiðurslista IBBY International Honour Booklist árið 2012. Hún hefur selt kvikmyndaréttinn að barnabókinni Á puttanum með pabba.
Vala hefur búið og starfað á Íslandi, Englandi, Ítalíu, Þýskalandi, Tyrklandi og Möltu. Hún hefur því unnið með höfundum og listamönnum frá mismunandi löndum, á mismunandi sviðum og komið að fjölbreyttum verkum í gegnum tíðina. Fjölbreytni, samvinna og innsæi í mismunandi menningu, bæði barna og fullorðinna, hefur einkennt ritstörf Völu. Verk hennar hafa verið þýdd á fjölmörg tungumál og sett upp í leikhúsum víða um heim.
Vala býr í Reykjavík ásamt manni sínum og barni.
Ritaskrá
- 2019 Brotin, sjónvarpssería, meðhöfundur Kolbrún Anna Björnsdóttir
- 2013 Á puttanum með pabba, meðhöfundur Kolbrún Anna Björnsdóttir
- 2013 Þankaganga Myslobieg 1 og 2
- 2011 Þankaganga/Myslobieg 2 Súsanna í Póllandi
- 2010 Þankaganga/Myslobieg
- 2009 Tónlist hamingjunnar
- 2005 Eldhús eftir máli - hversdagslegar hryllingssögur byggt á smásögum Svövu Jakobsdóttur
- 2006 Emma og Ófeigur, meðhöfundur Árni Íbsen
- 2006 Nú skyldi ég hlæja, dramaturg
- 2004 Á floti, dramaturg
- 2003 Hættuleg kynni, meðhöfundur Dansleikhús með Ekka
- 2003 Gildi
- 2002 Má ég bjóða þér eitthvað annað?
- 2001 Kvenna Hvað, meðhöfundur Anna Pálína Árnadóttir
- 2001 Veröldin er vasaklútur
- 2000 Ljóð í mannhafið - Ljóð og örsögur í safninu
- 2000 Háaloft
- 1999 Hafrún, meðhöfundur Möguleikhúsið
- 1998 Sítrónusystur, meðhöfundur Icelandic Take Away Theatre
- 1998 Lemon Sisters, meðhöfundur Icelandic Take Away Theatre
- 1997 Kíkir, Súkkulaði, Fýlugufa og Rusl
- 1996 Eða þannig
- 1996 Íslenskt kvöld
Verðlaun og viðurkenningar
- 2012 IBBY International Honourary Booklist
- 2010 Fjöruverðlaunin Þankaganga Myslobieg
- 2010 Vorvindar/Springwinds IBBY Iceland
- 2006 Menningarverðlaun DV fyrir Eldhús eftir máli, hversdagslegar hryllingssögur
- 2006 Grímuverðlaunin fyrir Eldhús eftir máli, hversdagslegar hryllingssögur
- 2001 Evrópsk kvennaleikhátíð, Finnland fyrir Háaloft
- 2001 Critics Choice, Budapest fyrir Háaloft
- 2004 Kiel Monodrama Festival 3. verðlaun fyrir Háaloft
- 1999 Audience Award European Women´s Theatre Festival fyrir Eða þannig
Tilnefningar
- 2014 Til Fjöruverðlaunanna fyrir Á puttanum með pabba
- 2006 Til Grímunnar fyrir Eldhús eftir máli, hversdagslegar hryllingssögur
- 1999 Til Menningarverðlauna DV fyrir Hafrún