SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Þuríður Guðmundsdóttir frá Bæ

Þuríður Guðmundsdóttir fæddist 29. nóvember 1901 í Reykjanesi, Árneshreppi, ein þrettán systkina.

Þuríður ólst upp á Ströndum og bjó á Bæ á Selströnd og Hamarsbæli með eiginmanni sínum, Árna Andréssyni, síðar frystihússtjóra á Hólmavík. Þau bjuggu lengi á Akranesi en Þuríður var síðustu árin á Hrafnistu í Reykjavík og hóf þá að skrifa skáldsögur. 

7. júní 1987 birtist viðtal við Þuríði í Morgunblaðinu með yfirskriftinni: "Rithöfundarferillinn hófst á Hrafnistu." Þar segir hún, þegar hún er spurð af hverju hana langaði að skrifa:

„Ja, þetta er nú spurning sem ég get ekki svarað. Þetta kom einhvern veginn innan frá. Ég hafði ekkert markmið eða stefnu, en þegar ég byrjaði þá hugsaði ég strax að það væri gaman að setja saman þessa uppbyggingu og aðdragandann að henni. En maðurinn minn var á móti því, hann þoldi það ekki.“ Af hverju þoldi hann það ekki? „Jú, karlmenn voru allt öðruvísi þá en nú er. Karlmaðurinn var allt.“ Hafði hann ekki áhuga á bókum? „Jú, hann las mikið, en mest bara sér til skemmtunar, bara reyfara og svo náttúrulega blöðin. Hann las t.d. bækurnar hennar Guðrúnar frá Lundi og hafði afskaplega gaman af. Hann las mikið íslendingasögurnar og kunni þær utanað, eða því sem næst." Heldur þú að það sé vegna þess að þú ert kona, sem þú f órst ekki fyrr fram á ritvöllinn? „Já, ég býst við því að það hafi verið minnimáttarkenndin sem hélt aftur af mér. Konurnar áttu ekki að skipta sér af neinu en þær áttu að hafa allt í standi.“

Þuríður lést 9. apríl 1992.

Hér má sjá dæmi um kveðskap Þuríðar (bragi)

Hér má heyra Þuríði segja ýmsar sögur (ísmús)


Ritaskrá

  • 1992  Sólris
  • 1985  Skin og skúrir 1981 Gull í mund
  • 1980  Niðursetningurinn
  • 1978  Breyttir tímar
  • 1977  Gæfumunur