SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Fanney Hrund Hilmarsdóttir

Fanney Hrund Hilmarsdóttir fæddist að kvöldi Þorláksmessu árið 1987, í miðjum jólagjafainnkaupum. Hún ólst upp á sveitabæ í Flóanum, gekk í hinn tuttugu barna Gaulverjaskóla en síðar í Fjölbrautaskóla Suðurlands og Háskólann í Reykjavík.

Til sextán ára aldurs starfaði Fanney á sveitabæ foreldra sinna, tamdi og þjálfaði hesta og vakti yfir sauðfjárbúum í sauðburði. Meðfram framhaldsskólanámi starfaði hún í Húsasmiðjunni og Pylsuvagninum á Selfossi, meðfram háskólanámi á sambýli, við tamningar íslenskra hesta í Þýskalandi sumarið 2011 og sem aðstoðarmaður Ragnars Aðalsteinssonar hrl., veturinn 2012. Eftir útskrift úr lögfræði starfaði Fanney sem lögfræðingur hjá Lögmönnum Suðurlandi og síðar sem héraðsdómslögmaður hjá Rétti-Aðalsteinsson & Partners.

Síðla árs 2016 lagði Fanney héraðsdómslögmannsréttindin inn og hélt af stað í ferðalag um heiminn. Eftir ársflakk komu hún og maðurinn hennar, Steinþór Runólfsson, sér fyrir í Ástralíu til ársdvalar. Þar hófst Fanney handa við uppbyggingu ævintýraheims sem byggist á kenningu réttarheimspekingsins John Rawls um fávísisfeldinn. Fríríkið, sem kom út haustið 2021, er fyrsta bók af fjórum í bókaflokki um ævintýraheim Fanneyjar.

Síðsumars árið 2019 keyptu þau hjónin sveitabæ á bökkum Hólsár í Rangárþingi ytra. Þar stundar Fanney nú sjálfsþurftabúskap ásamt því að sinna ritstörfum.


Ritaskrá

  • 2023  Dreim - Fall Draupnis
  • 2021  Fríríkið