SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Sólveig Johnsen

Sólveig Johnsen er fædd árið 1988. Hún hefur lokið BA-gráðu í kvikmyndafræði frá Háskóla Íslands og útskrifaðist með meistaragráðu í ritlist frá sama skóla árið 2019. Samhliða námi rak hún ásamt fleirum tónleikastaðinn Gaukinn í Reykjavík í átta ár. Hún hefur auk þess beitt sér fyrir ýmsum hinsegin málefnum og skemmt sem dragkóngur á börum borgarinnar. Sólveig hefur einnig fengist við kvikmyndagerð með hópnum Lost Shoe Collective, meðal annars sem handritshöfundur vefseríunnar Norms sem kom út snemma árs 2021. Í kjölfar heimsfaraldursins ákvað hún að hætta í skemmtanabransanum og hefja BA-nám í ensku með það markmið að kenna í framhaldsskólum áður en langt um líður.

Sólveig hefur sent frá sér skáldsöguna Merki sem kom út á vegum Blekfjelagsins í maí 2021 og er hennar fyrsta bók. Einnig hefur hún birt smásögur í ýmsum safnritum, meðal annars í bókinni Það er alltaf eitthvað sem ritlistarnemar gáfu út árið 2019. Verk Sólveigar eiga það flest sameiginlegt að fjalla um tilveru fólks undir hinsegin regnhlífinni en henni þykir mikilvægt að auka sýnileika hinsegin hópa í bókmenntum og öðrum listgreinum.


Ritaskrá

2021 Merki

2019 Það er alltaf eitthvað, ásamt öðrum