Allý: Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir
Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir er fædd árið 1956 og ólst upp í Vogunum.
Aðalheiður gekk í framhaldsskóla erlendis en lagði síðan stund á sjúkraliðnám og starfaði sem sjúkraliði í mörg ár.
Aðalheiður gekk með skáldið í maganum frá barnsaldri en hún var komin vel yfir tvítugt þegar hún byrjaði að skrifa.
Fyrsta bók Aðalheiðar var ljóðabókin Silfurstrá sem Skákprent gat út árið 1990. Bókin geymir 35 ljóð og segir Silja Aðalsteinsdóttir á bókarkápu að þau geymi tíu ára hugsun, alúð og puð.
Fjórtán árum síðar sendi hún frá sér aðra bók, smásagnasafnið Hugleika sem hún gaf út sjálf. Sögurnar fjalla um reynsluheim kvenna, allt frá barnsaldri til fullorðinsára, og geyma bæði gleði og alvöru. Þá eru þær ekki síður siðferðilegs eðlis og fjallar til dæmis síðasta frásögnin um átök konu við félagslega- og geðheilbrigðiskerfið.
Ljóð eftir Aðalheiði hafa birst í ýmsum tímaritum og blöðum og auk þess hefur hún birt fjölda blaðagreina og pistla í gegnum árin.
Aðalheiður býr í Reykjavík og á eina uppkomna dóttur.
Heimildir:
- „Að elska er að gefa frelsi.“ (20. júní 1991). Pressan. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3534440
- „Hugleikar er eftir Aðalheiði Sigurbjörnsdóttur.“ (23. desember 2004). Mbl.is. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/836243/
Ritaskrá
- 2004 Hugleikar
- 1990 Silfurstrá