SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Sigríður Soffía Níelsdottir

Sigríður Soffía Níelsdóttir er fædd í Borgarnesi árið 1985 en fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur þegar hún var fimm ára og ólst hún þar upp.

Sigríður Soffía tók stúdentspróf frá Mennaskólanum í Reykjavík og útskrifaðist með BA-gráðu sem listdansari frá Listaháskóla Íslands árið 2009. Hún sótti skiptinám í loftfimleikum við einn fremsta sirkusskóla Evrópu; Ecole Superior des Arts de Cirque í Brussel. Hún lauk MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík 2020 og er að auki með einkaflugmannspróf frá Flugskóla Íslands frá árinu 2015.
 
Sigríður Soffía á langan feril í eigin listsköpun og er óhrædd við að flakka á milli listforma í bland við nýsköpun, vöruhönnun og ritstörf. Hún stofnaði sitt eigið nýsköpunarfyrirtæki, Eldblóm árið 2020 sem býður upp á vörur og upplifanir tengdar hreyfingu. Hún hefur sinnt í ýmsum stjórnarstörfum í gegnum tíðina og er til að mynda núverandi stjórnarformaður Íslenska dansflokksins.
 
Sigríður Soffía hefur starfað hérlendis og erlendis sem dansari, hefur samið dans og danssýningar og tekið að sér leikstjórn ýmissa verka. Hún hefur meðal annars hannað flugeldasýningar á menningarnótt í Reykjavík og fyrir borgarhátíð í Barcelona. Verk hennar Eldblóm, dansverk fyrir flugelda og flóru opnaði á Listahátíð í Reykjavík 2020 í Hallargarðinum og var sett upp í þriðja sinn árið 2023 en þá sérstaklega til styrktar Krabbameinsfélaginu og bleiku slaufunni. Blómainnsetningin var afar táknræn og vakti verðskuldaða athygli en um var að ræða 8.000 bleik blóm sem sprungu út allt sumarið.
 
Sigríður Soffía gaf út sína fyrstu ljóðabók Til hamingju með að vera mannleg í apríl 2023 og frumsýndi í framhaldi dansverk byggt á bókinni sem flutt var á stóra sviði Þjóðleikhússins af sjö leikkonum og dönsurum við tónlist frumsamda af Jónasi Sen. Verkið hlaut mikið lof og þrjár tilnefningar til Grímunnar.
 
En Sigríður Soffía lætur ekki nægja að fást við danslist, flugeldalist og ritlist en fæst einnig við kvikmyndalist og hefur gert nokkrar stuttmyndir.
 
Þessu til viðbótar hefur Sigríður Soffía hlotið margar viðurkenningar á sínum ferli og sem dæmi þá hlaut verk hennar Svartar fjaðrir þrjár tilnefningar til Grímunnar árið 2015 en það er samið út frá samnefndri ljóðabók Davíðs frá Fagraskógi. Hún hlaut Menningarverðlaun DV fyrir Eldar, fyrsta flugeldaverk sitt, vann til verðlauna á dansmyndahátíð í Bilbao á Spáni fyrir bestu dansstuttmyndina og hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022, menningarverðlaun þvert á listgreinar, sem veitt voru af Forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessyni.
 
Sigríður Soffía býr með fjölskyldu sinni á Seltjarnarnesi.
 
Heimildir: Heimasíða Seltjarnarnesbæjar, heimasíða Sigríðar Soffíu og opinberir fjölmiðlar.
Myndin af Sigríði Soffíu er fengin af facebook-síðu Seltjarnarnessbæjar

Ritaskrá

  • 2023  Til hamingju með að vera mannleg

 

Verðlaun og viðurkenningar

(í vinnslu)

  • 2024  Bæjarlistamaður Seltjarnarness
  • 2022  Íslensku bjartsýnisverðlaunin, veitt af forseta Íslands
  • 2013  Menningarverðlaun DV fyrir að umbreyta flugeldasýningu á Menningarnótt í Reykjavík
  • 2010  Verðlaun fyrir bestu dansmyndina á stuttmyndahátíð í Bilbao fyrir Uniform Sierra

 

Tilnefningar

(í vinnslu)

  • 2023  Til Grímunnar fyrir leikverk ársins fyrir Til hamingju með að vera mannleg
  • 2023  Til Grímunnar fyrir dans og sviðshreyfingar fyrir Til hamingju með að vera mannleg
  • 2017  Til Grímunnar sem besti dansari
  • 2015  Til Grímunnar fyrir bestu framleiðslu á Svörtum fjöðrum
  • 2011  Til Grímunnar sem besti danshöfundur
  • 2011  Til Menningarverðlauna DV fyrir dans og dansverk
  • 2010  Til Menningarverðlauna DV fyrir fjölbreyttan árangur

 

Heimasíða

https://siggasoffia.com/