
Kristín Guðmundsdóttir
Kristín Guðmundsdóttir fæddist árið 1859 á Langeyri í Garðasókn í Gullbringusýslu. Hún lést árið 1901.
Fyrstu 8 árin var Kristín í foreldrahúsum en árið 1868 er hún skráð ómagi í Halldórskoti í Garðasókn. Ástæðan er fátækt foreldranna en Kristín var þriðja í röð sex systkina. Árið 1870 er hún skráð ómagi í hjáleigu á Hvaleyri sem nú er hluti af Hafnarfirði.
Ellefu ára veiktist Kristín af holdsveiki og þegar hún fermdist árið 1874 var sjúkdómurinn farinn að taka talsverðan toll af henni. Aldrei var henni leitað lækninga á þessum árum. Þegar Kristín var 16 ára sameinaðist hún fjölskyldu sinni enda orðin óvinnufær. Árið 1890 er hún svo aftur skráð ómagi og þá á Vífilsstöðum. Þar er hún til ársins 1898 að Holdsveikraspítalinn í Laugarnesi var stofnaður. Var hún í hópi fyrstu sjúklinga sem þar lögðust inn. Þá var Kristín orðin blind og mjög illa farin af holdsveikinni.
Eftir Kristínu liggur kvæða- og sálmasafn sem hún orti á Holdsveikraspítalanum. Það er varðveitt í handritasafni undir safnmarkinu Lbs 2435 8vo. Líta má á safnið sem míkrókosmos eða smámynd af Holdsveikraspítalanum því efnið hverfist um spítalann sjálfan og sjúklingana. Eitt af markmiðum Kristínar með kveðskapnum var að hugga og stæla kjark þeirra sem deildu með henni kjörum á spítalanum.
(Heimild: Handritasafn LBS HBS https://www.facebook.com/handrit)
Ritaskrá
Lbs 2435 8vo